Loftorka og Suðurverk með lægst boð í mislæg gatnamót

Fréttir

Sameiginlegt tilboð Loftorku Reykjavík ehf. og Suðurverks ehf. var lægst í byggingu mislægra vegamóta á mótum Reykjanesbrautar sunnan Hafnarfjarðar og Krýsuvíkurvegar. Þrjú önnur tilboð bárust. Loftorka og Suðurverk buðu 918 milljónir króna í verkið sem á að vera að fullu lokið 1. nóvember í ár.

Loftorka og Suðurverk voru með lægsta boð í mislæg vegamót á
Reykjanesbraut við Krýsuvíkurveg. Verkinu á að vera lokið 1. nóvember 2017.

Sameiginlegt tilboð Loftorku Reykjavík ehf. og Suðurverks
ehf. var lægst í byggingu mislægra vegamóta á mótum Reykjanesbrautar sunnan
Hafnarfjarðar og Krýsuvíkurvegar. Þrjú önnur tilboð bárust. Loftorka og
Suðurverk buðu 918 milljónir króna í verkið sem á að vera að fullu lokið 1.
nóvember í ár.

MislaegGatnamot2017Utbod

Íslenskir aðalverktakar ehf. voru með næst lægsta tilboð upp
á ríflega 979 milljónir króna, þá Ístak hf. með tæplega 997 milljónir króna og
loks Munck Íslandi ehf. með 1.052 milljónir króna ríflega. Áætlaður
verktakakostnaður var 817 milljónir króna. Þannig að lægsta tilboð var ríflega
það. Í verkinu felst gerð mislægra vegamóta á mótum
Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar auk allra vega og stígagerðar sem
nauðsynleg er til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega. Til framkvæmdanna
telst einnig breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut og
tengivegar að Selhellu. Einnig er innifalin gerð göngu- og hjólastígs meðfram
Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð
hljóðmana við Reykjanesbraut og í Hellnahverfi í Hafnarfirði hluti verksins.
Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir
og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

Ábendingagátt