Lokahóf skapandi sumarstarfa í dag milli kl. 15-18

Fréttir

Lokahóf Skapandi sumarstarfa fer fram í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn í dag milli kl. 15-18. Þétt dagskrá. Öll velkomin.

Uppskera Skapandi sumarstarfa 

„Við erum mjög, mjög spennt og hlökkum til. Þetta verður gaman,“ segir Þorbjörg Signý Ágústsson sem sinnti skapandi sumarstarfi fyrir fjórum árum og er nú leiðbeinandi starfsins. Uppskera skapandi Sumarstarfa verður í Nýsköpunarsetrinu í dag milli klukkan 15-18.
 
Tíu manns í níu hópum. Unga fólkið hefur verið að síðan í byrjun júní og fyrsta klukkustundin verður ævintýraleg, þar sem fimm þeirra koma fram og sýna afrakstur sinn. Tómas Vigur leikur á fiðluna sína í lokin.
 
„Við höfum rithöfund, ljóðabókahöfund, tónlistarfólk og fólk sem bjó til eigin hljóðfæri í hópnum í ár. Hér má sjá allt sem almenn list teygt sig yfir í. Hér er hægt að koma, sjá fólkið og ferlið, horfa á stuttmynd sem gerð var í sumar og fikta í hljóðfærunum sem voru smíðuð,“ segir hún
 
Árið í ár er sjötta starfsár skapandi sumarstarfa í Hafnarfirði. Afraksturinn síðustu ár hefur vakið eftirtekt. Ungmennin styrkt, þau fá tækifæri til að vinna að listinni, þróa hugmyndir sínar og prófa á bæjarbúum. „Þetta breytti lífi mínu,“ segir Þorbjörg um upplifun sína af starfinu fyrir fjórum árum, starfinu sem nújn nú stýrir.

Dagskráin

  • kl. 15:00 Opnunarorð
    Umsjónarmaður Skapandi Sumarstarfa, Þorbjörg Signý Ágústsson, býður gesti velkomna
  • Kl. 15:10 Ómstaður, flutt af Unu og Kristjonas
    Una mist og Kristijonas Groblys flytja tónverk fyrir gesti með handgerðum hljóðfærum. Eftir dagskrá finnast þau í Ritsmiðjunni með annan flutning, gestum býðst að skoða hljóðfærin, hlusta á tónlistina og spjalla við listamennina.
  • kl. 15:20 Ljóðalestur með Iðu Ósk
    Iða Ósk les nokkur ljóð fyrir gestum úr ljóðabókinni sinni. Gestum gefst færi á að skoða verkefnið og bókina betur að lokinni dagskrá.
  • kl. 15:30 Tilfinningar, kynning á verkefni Mirru Hjartardóttur
    Mirra verður með stutta kynningu en býður svo börnum og foreldrum að koma til hennar kl. 16 í Tilraunasmiðjuna til að prófa spilið stuttlega áður en hún heldur utan um málunarstund á sömu forsendum og spilið sjálft.
  • kl. 15:40 Upplestur úr bók með Smára Hannessyni
    Smári les upp úr bókinni sinni Eldar. Gestum gefast færi á skoða fyrstu drög af bókinni og skrá sig á póstlista að lokinni dagskrá.
  • kl. 16:00 Fiðluleikur með Tómasi Vigur
    Tómas slær á létta strengi og lýkur dagskránni með nokkrum vel völdum lögum.
  • Frá kl. 16-18 býðst gestum að rölta á milli bása og herbergja. Þátttakendur Skapandi sumarstarfa taka á móti gestum og spjalla við gesti um afrek sumarsins, verkefnin þeirra og sýna áhugasömum afrakstur undanfarinna mánaða.
Viðburðurinn er opinn öllum og við hvetjum Hafnfirðinga – og auðvitað gesti hvaðanæva að – til að mæta, styðja ungt fólk í sköpun og njóta þess sem verður á boðstólnum.
 
Ábendingagátt