Loksins glittir í flutning Hamranes- og Ísalslína úr byggð

Fréttir

„Þetta er mikill áfangi fyrir Hafnarfjörð. Við höfum barist fyrir þessu frá því að byrjað var að byggja á Völlunum. Lítið hefur hreyfst og málið er orðið virkilega aðkallandi og áríðandi fyrir bæjarfélagið og íbúa þess að sjá aðgerðir og fyrir endann á færslu línanna úr byggð og nánast úr húsagörðum hjá fólki“, segir Haraldur L. Haraldsson, 

Í gær laugardaginn 17.
febrúar birtist  auglýsing í fjölmiðlum
frá Landsneti um útboð á fyrsta áfanga við færslu Hamraneslína úr byggð í
Hafnarfirði.  Ásamt færslu Ísallína frá
íbúðabyggð.  Það eru fyrstu merki um
framkvæmdir á færslu línunnar frá því að uppbygging hófst á Völlunum í
Hafnarfirði. „Þetta er mikill áfangi fyrir Hafnarfjörð. Við höfum barist fyrir
þessu frá því að byrjað var að byggja á Völlunum. Lítið hefur hreyfst og málið
er orðið virkilega aðkallandi og áríðandi fyrir bæjarfélagið og íbúa þess að
sjá aðgerðir og fyrir endann á færslu línanna úr byggð og nánast úr húsagörðum
hjá fólki“, segir Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri. Hamraneslínur ná yfir
lóðir í nýju íbúahverfi í Skarðshlíð og væntanlegu nýju íbúabyggð í
Hamranesi.  Ásamt því að liggja þétt að
byggð í löngu uppbyggðum hverfum á Völlunum.

 

Eins og áður kom fram hefur
barátta bæjaryfirvalda í Hafnarfirði fyrir því að Hamraneslínur verði fluttar
úr byggð innan  sveitarfélagsins staðið
lengi yfir. Árið 2009 var undirritaður samningur milli Landsnets og
Hafnarfjarðarbæjar. Í Þeim samningi var gert ráð fyrir flutningi á Hamraneslínu
í þremur áföngum sem átti að hefjast árið 2011 og verklok í síðasta lagi árið
2017. Þann 25. október 2012 var ljóst að þetta myndi ekki ganga eftir og var
því  undirritaður viðauki milli Landsnets
og Hafnarfjarðarbæjar þar sem kom fram að niðurrif Hamraneslína og færsla átti
að hefjast eigi síðar en 2016 og ljúka eigi síðar en 2020

 

„Það
var svo í upphafi þessa kjörtímabils, sem undirritaður var nýr samningur á
milli Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets þar sem við töldum að  of langt væri að bíða til ársins 2020 að
línurnar færu“, segir Haraldur. Í
samningnum segir í annarri grein  að rífa
eigi Hamraneslínu fyrir árslok 2018. 
Ljóst er að miðað við að framkvæmdir eru að hefjast í ár mun það ekki
takast fyrr en á árinu 2019.  Til
viðbótar í samningnum frá 2015 er samkomulag um flutning á Ísallínu fjarri íbúabyggð,
sem ber að fagna að fékkst í gegn. „ Frá því að nýr samningur var undirritaður
árið 2015 hafa bæjaryfirvöld barist fyrir því að staðið væri við samninginn og
framkvæmdir hæfust, sem nú vonandi sér fyrir endann á“, segir Haraldur.

 

Bygging nýrra legu
Lyklafellslínu ( Sandskeiðslínu 1 ) er forsenda þess að hægt verði að fjarlægja
Hamraneslínur og flytja Ísallínur. Línan er á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar
2015-2024 og því samþykkt af Orkustofnun. Framkvæmdin
hefur farið í mat á umhverfisáhrifum.

 

Framkvæmdaleyfin
sem sveitarfélögin hafa gefið út vegna framkvæmdanna hafa verið kærð og er
úrskurðar að vænta í næsta mánuði.

 

Ábendingagátt