Lokun á aðrein frá Krýsuvíkurvegi

Fréttir

Vegna vinnu við tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð þarf að loka suðaustur rampi frá Krýsuvíkurvegi inn á Reykjanesbraut í átt til Reykjavíkur. Verið er að malbika og leggja lokahönd á frágang lagna á þessu svæði.

Vegna vinnu við tvöföldun Reykjanesbrautar í gegnum Hafnarfjörð þarf að loka suðaustur aðrein frá Krýsuvíkurvegi inn á Reykjanesbraut í átt til Reykjavíkur. Verið er að malbika og leggja lokahönd á frágang lagna á þessu svæði.

Sjá nánar á mynd

Gera má ráð fyrir að aðreinin verði lokuð fram að helgi. Umferð
verður beint um hjáleið um Ásbraut. Vegagerðin vonast til að vegfarendur sýni framkvæmdunum skilning
og þolinmæði.

Ábendingagátt