Lokun á þjónustu og starfsemi fyrir fólk í viðkvæmri stöðu

Fréttir

Hafnarfjarðarbær hefur tekið ákvörðun um lokun á starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Öll önnur þjónusta fjölskyldu- og barnamálasviðs helst órofin sbr. öll heimaþjónusta, stuðningsþjónusta, þjónusta í íbúðakjörnum og á heimilum.

Hafnarfjarðarbær hefur
tekið ákvörðun um lokun á starfsstöðvum sveitarfélagsins sem halda úti
þjónustu og starfsemi fyrir fólk sem er
í viðkvæmri stöðu eða með undirliggjandi sjúkdóma. Ríkislögreglustjóri hefur
lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna
kórónuveiru (COVID-19) og er ákvörðun tekin með hliðsjón af þeirri breytingu. 

Allir hlutaðeigandi verða
látnir vita um leið og hægt verður að hefja starfsemi að nýju. Öll önnur
þjónusta fjölskyldu- og barnamálasviðs helst órofin sbr. öll heimaþjónusta, stuðningsþjónusta,
þjónusta í íbúðakjörnum og á heimilum. Sviðið vinnur eftir skýrum verkferlum og
er í nánu samstarfi við neyðarstjórn sveitarfélagsins og almannavarnir.

Heimsóknarbann hefur verið sett á Hrafnistuheimilinu í
Hafnarfirði og á hjúkrunarheimilinu á Sólvangi. Ákvörðun hefur verið tekin um
að loka dagdvölinni á Sólvangi. Dagdvölin á Hrafnistu er opin sem og
dagþjálfunin í Drafnarhúsi. Staðan verður endurmetin daglega og tilkynningar og
upplýsingar sendar til hlutaðeigandi.

Eftirfarandi starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar verður lokað


Félagsstarf

  • Hraunsel
    Flatahrauni 3
  • Hjallabraut
    33
  • Sólvangsvegur
    1
  • Lækur
    Hörðuvöllum 1
  • Mötuneyti á Hjallabraut 33 og Sólvangsvegi 1 verða
    einnig lokuð

Vinnu- og virknimiðuð stoðþjónusta
fyrir fatlað fólk

  • Hæfingarstöðin
    Bæjarhrauni
  • Geitungar,
    atvinnuþjálfun
  • Vinaskjól,
    lengd viðvera
  • Skammtímadvöl
    Hnotubergi
Ábendingagátt