Lúðvík ráðinn hafnarstjóri

Fréttir

Lúðvík Geirsson hefur verið ráðinn hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar.  Lúðvík sat í hafnarstjórn frá 1986-90 og frá 1994-2010, sem formaður hafnarstjórnar frá 2013-14 og var hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar samhliða því að sinna embætti bæjarstjóra frá 2002-2004. 

Lúðvík Geirsson hefur
verið ráðinn hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar.  Lúðvík sat í hafnarstjórn frá
1986-90 og frá 1994-2010, sem formaður hafnarstjórnar frá 2013-14 og var hafnarstjóri
Hafnarfjarðarhafnar samhliða því að sinna embætti bæjarstjóra frá 2002-2004. 

Hafnarstjórn samþykkti á fundi sínum í morgun að ráða Lúðvík
Geirsson sem hafnarstjóra. Það var mat valnefndar, sem skipuð var af hafnarstjórn
vegna ráðningarinnar, að Lúðvík uppfylli best á hlutlægum grundvelli þá
mikilvægustu þætti í kröfum sem gerðar voru til umsækjenda.

LudvikGerisson

Þekking á stöðu og
rekstri Hafnarfjarðarhafnar

Lúðvík var bæjarstjóri í Hafnarfirði frá 2002-2010 og tók á
þeim tíma virkan þátt í stefnumótun og uppbyggingu Hafnarfjarðarhafnar í
samvinnu við hafnarstjórn og hafnarstjóra. Hann var formaður afmælisnefndar
hafnarinnar þegar haldið var upp á 80 ára afmæli hennar árið 1988 með sögusýningu
í Hafnarborg og útgáfu á afmælisriti.  Lúðvík
býr að þekkingu á rekstri og stöðu Hafnarfjarðarhafnar. Á starfsferli sínum
hefur Lúðvík sinnt ýmsum fjölmiðlastörfum og dagskrárgerð, komið að
fjölbreyttum verkefnum við almenna stjórnsýslu, verkefnastjórn og ráðgjöf. Hann
var formaður Blaðamannafélags Íslands um ellefu ára skeið og framkvæmda- og
rekstrarstjóri félagsins um tíma. Hann hefur einnig sinnt kennslu í fjölmiðlun
við Háskóla Íslands og Flensborgarskóla, starfað fyrir hin ýmsu ráðuneyti auk
þess að sitja á Alþingi frá 2011-13.

Við bjóðum Lúðvík velkominn að nýju í hóp starfsmanna
Hafnarfjarðarbæjar!

Ábendingagátt