Lýðheilsugöngur í Hafnarfirði vegna 90 ára afmælis Ferðafélag Íslands
Hafnarfjarðarbær og Ferðafélag Íslands býður áhugasömum að taka þá í áhugaverðum göngum í Hafnarfirði í september. Hafnarfjörður er heilsubær og í því verkefni er sérstök áhersla á vellíðan, hreyfingu og kynna fyrir bæjarbúum uppland bæjarins.
Hafnarfjarðarbær og Ferðafélag Íslands býður áhugasömum að taka þá í áhugaverðum göngum í Hafnarfirði í september. Hafnarfjörður er heilsubær og í því verkefni er sérstök áhersla á vellíðan, hreyfingu og kynna fyrir bæjarbúum uppland bæjarins. Ferðafélagið fagnar í mánuðinum 90 ára afmæli sínu og stendur fyrir slíkum göngum um allt land.
Ráðgert er að göngurnar fari fram alla miðvikudaga í septembermánuði kl. 18:00, séu allajafna fjölskylduvænar og taki u.þ.b. 60-90 mín.
6. sept. kl. 18:00 Hvaleyrarvatn. Mæting við bílastæði við sandvíkina í Hvaleyrarvatni. Steinunn Leifsdóttir leiðsögumaður og Steinar Björgvinsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar leiða gönguna og segja frá því sem ber fyrir sjónir.
13. sept. kl. 18:00 Álfaganga – gengið frá Hafnarborg. Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur og álfaleiðsögukona leiðir gönguna og segir frá helstu álfastöðum og sögum í mið- og suðurbæ Hafnarfjarðar.
20. sept. kl. Hraunganga í umsjá Jónatans Garðarssonar. Mætt er við Straum, í Straumsvík. Fjölmargt spennandi verður skoðað eins og Straumsréttin, Kúaréttin, Kotaklifsvörðu, Óttarstaði, Vatnaskersklöpp, Jónsbúð, Þýskubúð og hringnum lokað við Straum.
27. sept. kl. 18:00 Helgafell. Mæting á bílastæðinu við Kaldá, ofan Kaldársels. Steinunn Leifsdóttir leiðir gönguna og segir frá staðháttum.