Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Víðistaðaskóli frumsýnir söngleikinn Mamma mía! á föstudag. Fimm sýningar, tvær þegar uppseldar og 70% miðanna þegar seldur.
Einskær leikgleði mun skína úr hverju andliti nemenda 10. bekkjar Víðistaðaskóla á föstudag þegar þeir frumsýna söngleikinn Mamma Mía. Nærri fimmtíu manna leikhópur stendur á sviði. Önnur fjörutíu sinna stuðningshlutverkum. Öllu er tjaldað til. Foreldrar, kennarar og nemendur hafa öll lagt sitt á mörgum við að sauma búninga og smíða leikmynd.
Sýningarnar standa dagana 13.-15. febrúar og eru fimm. Uppselt er á tvær og hver að verða síðastur að tryggja sér miða. Verð almennt 3.200 krónur en 1.700 fyrir 7. bekk og yngri.
„Það gengur vel. Fullt af vinnu er í gangi,“ segir Úlfhildur Harne Örnólfsdóttir, leikstjóri sýningarinnar. „Við fengum sviðið og salinn afhentan á mánudag og nú eru allar hendur á fullu. Mikið að gera. Nú gerast leikhúskraftaverkin,“ segir hún. „Þetta er að verða raunverulegt. Ljósin lýsa þau upp og þau eru að fara að sýna. Spenna, tilhlökkun og þau fyllast að innan af glimmeri.“„Þau verða 49 á sviði en árgangurinn sjálfur er stærri. Þau eru um 90 og koma öll að sýningunni á einn eða annan hátt. Það eru svo mörg hlutverkin þegar kemur að svona uppsetningu. Þau vinna í sviðsmynd, búningum, markaðsmálum. Það er fullt af verkefnum og öll taka þau þátt.“
Nemendurnir fjármagna útskriftarferð sína í Þórsmörk í vor með sýningunni. Söngleikurinn er líka hluti af list- og verkgreinanámi þeirra. Úlfhildur hvetur fólk til að hafa hraðar hendur og tryggja sér miða. „Síðast þegar ég vissi var 70% miðanna seldir.“
Hún lýsir því hvernig risastór danshópur og kór séu stóran hluta sýningarinnar á sviðinu. „Þar að auki eru foreldrarnir búnir að vera svo rosalega virkir. Búnir að vera hér frá því í byrjun janúar að smíða, sauma, græja og gera.“
Fréttastofa Sýnar heimsótti hópinn í undirbúningnum. Þar sýndu krakkarnir nokkur spor úr sýningunni.
Svo líður helgin með sínum ævintýrum. Úlfhildur segir að hún hafi þegar rætt við krakkana hversu skrítin tilfinningin verði eftir helgi. „Mánudagurinn verður næs; að eiga frí um kvöldið. En fljótt munu þau velta fyrir sér hvað þau eigi að gera við allan tímann sinn! Þetta er búið að taka svo mikinn tíma í langan tíma. Það verða viðbrigði fyrir þau öll,“ segir Úlfhildur full tilhlökkunar fyrir uppskerunni.
Seinka þarf haustinnritun í grunnskóla. Unnið er hörðum höndum að því að leysa málið.
Þjónustusamningur út árið 2027 hefur verið undirritaður við Félag eldri borgara í Hafnarfirði. Félagið er framsýnt og var tilnefnt til…
Opnað hefur verið fyrir innritun barna sem fara í 1. bekk grunnskóla í Hafnarfirði haustið 2026. Fyrsta viðmið um umsóknarfrest…
Hafnfirski leikskólinn Álfasteinn fær Orðsporið 2026 á Degi leikskólans, sem er í dag, 6. febrúar. Hefðbundið er að veita Orðsporið,…
Lítið vatn er í Hamarskotslæknum vegna viðgerða á fráveitulögn sem liggur í honum. Lækurinn verður aftur stíflaður á morgun og…
Samkvæmt nýrri þjónustukönnun Gallup eru níu af hverjum tíu íbúum ánægðir með Hafnarfjörð sem búsetustað eða 91%. Talan hækkar milli…
Fyrsta vinnustofan af fjórum um lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna verður haldin í Nýsköpunarsetrinu næsta laugardag.
Margt er í boði á Vetrarhátíð 2026. Rýndu í dagskrána og fáðu innblástur við uppröðunina. Þannig verður helgin frábær.
Leikararnir Bjarni og Gúa Margrét, jazzband og Sundhöllin okkar leika aðalhlutverkið þegar kvikmyndin When Harry met Sally lifnar við hér…