Mangi og mikilvægu ungmennin okkar

Fréttir

Vinnuskóli Hafnarfjarðar tók til starfa í byrjun júní og eru rúmlega 700 hafnfirsk ungmenni 14 ára og eldri nú við fjölbreytt störf víða um bæinn. Störf þeirra eru afar mikilvæg fyrir sveitarfélagið og ákváðu bæjarstjóri og stjórnendur vinnuskóla að blása til veislu á Thorsplani fyrir og þakka fyrir vel unnin störf það sem af er sumri.   

Bæjarstjóri býður til veislu á Thorsplani

Vinnuskóli
Hafnarfjarðar tók til starfa í byrjun júní og eru rúmlega 700 hafnfirsk
ungmenni 14 ára og eldri nú við fjölbreytt störf víða um bæinn. Störf þeirra
eru afar mikilvæg fyrir sveitarfélagið og ákváðu bæjarstjóri og stjórnendur
vinnuskóla að blása til veislu á Thorsplani fyrir hópinn og þakka þannig
sérstaklega fyrir vel unnin störf það sem af er sumri.   

Vinnuskóli Hafnarfjarðar sinnir fyrst og fremst umhverfismálum
og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og
göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk vinnuskólans sinna mikilvægu hlutverki
í því að skapa ásýnd bæjarins, að hans sé þrifalegur og snyrtilegur. Stór hópur
starfar einnig á leikjanámskeiðum bæjarins og íþróttafélaga þar sem þau læra að
starfa með hóp yngri barna, veita þeim tilsögn og ráðleggingar. Slík störf eru
gefandi og mótandi til framtíðar. Þau ungmenni sem starfa við hreinsun í sumar
starfa í hópum. Hver hópur sér um sitt hverfi og vinnur sig þannig jafn og þétt
í gegnum fyrirliggjandi verkefni á hverjum stað. Mikil áhersla er m.a. lögð á
sameign og stolt okkar allra, miðbæinn, með það fyrir augum að hafa hann
snyrtilegan og fínan fyrir alla þá sem sækja hann heim. Búið er að skreyta
bæinn með blómum og stéttir og stíga sópaðir reglulega. Starfsmenn vinnuskóla
sinna mikilvægum verkefnum fram í ágúst.

Langi Mangi Svanga
Mangason

Nýverið festi Hafnarfjarðarbær kaup á ruslasugu sem nýtt er
í hreinsunarverkefni í miðbæ Hafnarfjarðar og víðar. Hennar fyrsta verkefni var
að þrífa það litla rusl sem eftir var í miðbænum fyrir hátíðarhöldin á 17.júní
og hefur hún staðið vaktina síðan. Sugunni var gefið nafn í dag og þótti
viðeigandi að ungmennin úr Vinnuskóla Hafnarfjarðar, flokkstjórar þeirra og
viðeigandi stjórnendur væru viðstödd nafngiftina enda um að ræða tæki sem
nýtist þeim vel við vinnu sína. Tillaga að nafni kom frá áhugasömum íbúa. Mangi
mun ruslasugan heita og þykir það vel viðeigandi þar sem hann Mangi er jú alltaf
svangur og til í meira rusl. Nafnið á sér líka sögu hér í Hafnarfirði en maður
að nafni Mangi starfaði lengi vel við hreinsunarstörf hér í Firðinum og er hans
og Gunna nokkurs Dó m.a. minnst fyrir framlag þeirra til hreinsunarmála. Gunni
Dó var einn þeirra sem um árabil sá um að hreinsa miðbæinn svo mikill sómi var
að.   

Ábendingagátt