Kórsjóður Hafnarfjarðar

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum í kórsjóð Hafnarfjarðar.

Kórsjóður Hafnarfjarðar styður við öflugt og fjölbreytt kórastarf í bænum.

Markmið sjóðsins er að efla reglubundið kórastarf og styrkja þau menningarlegu og samfélagslegu verðmæti sem kórar skapa fyrir bæjarbúa á öllum aldri.
Menningar- og ferðamálanefnd auglýsir árlega eftir umsóknum. Heimilt er að gera samninga til eins til þriggja ára í senn, með fyrirvara um árlega samþykkt fjárhagsáætlunar. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur vegna styrkja úr kórsjóði Hafnarfjarðar.

Hverjir geta sótt um?
Veittur er rekstrar- og starfsemisstyrkur til kóra sem:

  • eru með fasta og reglubundna starfsemi í Hafnarfirði
  • halda reglulegar æfingar og stunda virkt kórastarf
  • hafa sýnt fram á gildi sitt í menningarlífi bæjarins

Ekki er veittur styrkur til ferðalaga, náms eða endurmenntunar einstaklinga né til einstaka viðburða.

  • Hvað þarf að koma fram í umsókn?
  • Lýsing á kórnum og starfsemi hans
  • Markmið og hlutverk í menningarlífi Hafnarfjarðar
  • Fjöldi þátttakenda og markhópur
  • Yfirlit yfir reglubundna starfsemi (æfingar, tónleikar o.fl.)
  • Styrkupphæð sem sótt er um
  • Rekstraráætlun eða rekstraryfirlit
  • Upplýsingar um aðra fjármögnun

Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir. Horft er til starfsemi og samfellu í starfi, listrænna og samfélagslegra gæða, skipulags og raunhæfni rekstrar, sem og mikilvægis kórsins fyrir menningarlíf Hafnarfjarðar.

Styrkþegar skuldbinda sig til að:

  • koma fram að lágmarki einu sinni á ári á viðburði á vegum bæjarins eða í samstarfi við hann
  • geta stuðnings Hafnarfjarðarbæjar í kynningarefni