Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þriðjudaginn 7. apríl kl. 12 kemur bassasöngvarinn og Hafnfirðingurinn Sigurður Skagfjörð Steingrímsson fram á hádegistónleikum í Hafnarborg ásamt Antóníu Hevesi píanóleikara.
Á tónleikunum sem bera nafnið Með rísandi sól mun Sigurður flytja íslensk sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns og Sveinbjörn Sveinbjörnsson en einnig Ol’ Man River úr söngleiknum Showboat og Als Büblein klein, aríu úr óperunni Die lustige Weiber von Windsor eftir Otto Nicolai. Þetta eru næst síðustu hádegistónleikar vetrarins en í maímánuði mun Sigrún Pálmadóttir sópransöngkona flytja ítalskt prógram. Fyrr á tónleikaárinu hafa Elmar Gilbertsson, Hlín Pétursdóttir, Kristján Jóhannsson, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Viðar Gunnarsson komið fram.
Sigurður Skagfjörð stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík og var þar m.a. undir handleiðslu Más Magnússonar, Kristins Sigmundssonar, Guðmundar Jónssonar og Katrínar Sigurðardóttur. Sigurður hefur haldið tónleika hér á landi og erlendis, sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og í Íslensku óperunni. Þar hefur han sungið Raimondo í Luciu di Lammermoor, Gremin í Évgení Ónegin, Douphol barón í La traviata, Bonze í Madama Butterfly og Frank fangelsisstjóra í Leðurblökunni. Með Sinfóníuhljómsveitinni söng Sigurður Lodovico í Otello og hlutverk Jesú í Jóhannesarpassíunni sviðsettri í Langholtskirkju. Árin 1997 og 1998 stundaði Sigurður söngnám hjá Helene Karusso í Vínarborg.
Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg og valið með sér marga af fremstu söngvurum landsins. Út vorönnina 2015 verða hádegistónleikar Hafnarborgar haldnir síðasta þriðjudag í mánuði. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund, þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið er opnað kl. 11.30.
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…