13 verkefni hljóta menningarstyrk

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið úthlutun menningarstyrkja ársins 2018. Þrettán verkefni hljóta styrk að þessu sinni og fer formleg afhending fram 27. nóvember næstkomandi. 

Menningar-
og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið úthlutun menningarstyrkja ársins
2018. Þrettán verkefni hljóta styrk að þessu sinni; einstaklingar,
menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með
einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar
eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að
auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Formleg afhending styrkjanna fer
fram 27. nóvember næstkomandi um leið og styrkur úr Friðrikssjóði verður
afhentur.

Úthlutun
styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir,
listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast
Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að
viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér
kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun
er kr.- 2.595.000. Samtals hefur þá verið úthlutað 8.000.000 kr í styrki til
menningarmála á árinu.

Styrki að þessu sinni hlutu eftirfarandi:

Spiccato Haustlauf – tónleikar í Hafnarborg 190.000 kr.
Guðbjörg Pálsdóttir Dúkkulísur á jólum, tónleikar í Hafnarfirði á aðventu 2018 240.000 kr.
Ragnar Már Jónsson Hátíðardjass í Hafnarfirði – tónleikar    65.000 kr.
Flensborgarkórinn Afmælistónleikar Flensborgarkórsins 325.000 kr.
Duo Ultima Duo Ultima: tónleikar með verkum eftir frönsk tónskáld 100.000 kr.
Leikfélag Hafnarfjarðar Hið vikulega 13 – hið barnalega    70.000 kr.
Leikfélag Hafnarfjarðar Ferðamaður deyr – leiksýning 380.000 kr.
Jólahjón Jólahjón – tónleikar 300.000 kr.
Sveinssafn Myndlistarsýning 375.000 kr.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar Tónleikar Pollapönks, Lúðrasveitar og Kórs Öldutúnsskóla 200.000 kr.
Soffía Sæmundsdóttir Dagar myndlistar – Opin vinnustofa Soffíu 4.-28.10.2018 100.000 kr.
Leikfélag Hafnarfjarðar Höfundanámskeið    50.000 kr.
Andrés Þ. Gunnlaugsson  Tónleikar  200.000 kr.

Auglýst
verður eftir umsóknum fyrir fyrri úthlutun 2019 í janúar.

Hafnarfjarðarbær
óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju! 

Ábendingagátt