Menningarstyrkir 2019 – fyrri úthlutun

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið fyrri úthlutun menningarstyrkja ársins 2019. 22 verkefni hljóta styrk að þessu sinni. Formleg afhending fer fram 24. apríl um leið og tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni ársins 2019.

Menningar-
og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið fyrri úthlutun menningarstyrkja
ársins 2019. 22 verkefni hljóta styrk að þessu sinni; einstaklingar,
menningarhópar og samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði.
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir tvisvar
sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn
frekar listalíf bæjarins. Formleg afhending styrkjanna fer fram 24. apríl
næstkomandi um leið og tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni ársins 2019.

Úthlutun
styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir,
listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast
Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að
viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér
kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja í þessari
úthlutun er kr.- 6.080.000. Samtals verður úthlutað 11.000.000 kr í formi
menningarstyrkja á árinu 2019.


þessu sinni leggur menningar- og ferðamálanefnd til að gerðir verði
samstarfssamningar til þriggja ára við tvo aðila, þeir samningar verða lagðir
fyrir bæjarráð til samþykktar.

Auglýst
verður eftir umsóknum fyrir síðari úthlutun ársins 2019 í ágúst.
Hafnarfjarðarbær
óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!

Málsnúmer Nafn umsækjanda Nafn verkefnis Úthlutað 27.02.2019 Samstarfssamningur
1901520 Guðrún Anna Magnúsdóttir Vortónleikar hjá Kvennakórnum Rósir 210.000
1901522 Þórður H Hilmarsson Konudagstónleikar karlakórsins Þrasta 140.000
1901523 Þórður H Hilmarsson Vortónleikar karlakórsins Þrasta 140.000
1902328 Tryggvi Rafnsson Hafnfirðingurinn – Hlaðvarp 245.000   
1902330 Félag eldri borgara í Hafnarfirði Kóramót Gaflarakórsins í Hafnarfirði 350.000
1902331 Ólafur B Ólafsson Er völlur grær 190.000   
1902332 Hulda Björnsdóttir Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar 250.000
1902353 Svanhvít Erla Traustadóttir Flensborgarkórinn ásamt Hallveigu Rúnarsdóttur 210.000
1902354 Ragnar Már Jónsson Sumardjass víða um Hafnarfjarðarbæ 100.000
1902373 Stefán Örn Gunnlaugsson BYR – tónleikar 260.000
1902375 Eyrún Ósk Jónsdóttir Einleikur – Requiem 210.000
1902378 Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Sönghátíð í Hafnarborg 800.000 Árlega í 3 ár
1902381 Ásbjörg Jónsdóttir Tónleikar sönghópsins IMPRU í Hafnarborg 140.000
1902382 Benjamín Sigurgeirsson Vegan Festival 2019 140.000
1902383 Finnbogi Óskarsson Lúðrasveit Hafnarfjarðar – tónleikar á árinu 2019 600.000 Árlega í 3 ár
1902384 Henný María Frímannsdóttir Heima – tónlistarhátíð 700.000
1902385 Erlendur Sveinsson Sveinssafn – sýningarstarfsemi 500.000
1902387 Vilhjálmur Þór Sigurjónsson Tónlistarferðalag Barbörukórsins 250.000
1902388 Gyða Kristmannsdóttir Fjölmenningarhátíð í Norðurbæ Hafnarfjarðar 200.000
1902389 Helga Björg Arnardóttir Einleikstónleikar – Klarínettan í brennidepli 70.000
1902390 Christian Schultze Maíhátíð 2019 75.000
1902334 Guðmundur Sigurðsson Adagio – verk Bachs fyrir orgel og selló 300.000 
Úthlutað alls: 6.080.000
Ábendingagátt