Menningarstyrkir afhentir til að auðga listalíf bæjarins

Fréttir

Menningar- og ferðamálanefnd veitti styrki til verkefna og viðburða sem tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti síðasta vetrardag.

Menningar- og ferðamálanefnd veitti styrki til verkefna og viðburða við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag. Tuttugu og tvö verkefni hlutu styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti.

Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar verða nú afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja eru 5.405.000.- 

Styrkhafi Viðfangsefni: Upphæð
Björgvin Franz Gíslason Í hjarta Hafnarfjarðar, örþættir 320.000
Bryndís Björgvinsdóttir Sjónarhorn álfa 150.000
Camerarctica Mozart við kertaljós, tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju 120.000
Christian Schultze Maíhátíð 2018 75.000
Eyrún Ósk Jónsdóttir Ljóðagjörningur, friður og kærleikur 200.000
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Sönghátíð í Hafnarborg 500.000
Heimahátíðin Heima, tónlistarhátíð í Hafnarfirði 600.000
Inga Björk Ingadóttir Lýrutónleikar í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 150.000
Karlakórinn Þrestir Vortónleikar 100.000
Karlakórinn Þrestir Konudagstónleikar Þrasta 100.000
Katrín Helga Ólafsdóttir Samningurinn í Gaflaraleikhúsinu. 150.000
 Konráð Ragnarsson  Ljósmyndasýning á verkum Konráðs Ragnarsson 120.000
Kvennakór Hafnarfjarðar Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar 250.000
Lúðrasveit Hafnarfjarðar Tónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar árið 2018 500.000
Marteinn Sindri Jónsson Fararsnið, tónleikar 200.000
Martin Eliot Frewer La stravaganza, tónleikar 200.000
Páll Eyjólfsson Eyþór Ingi og allir hinir, sýning í Bæjarbíó 300.000
Rimmugýgur Víkingahátíð í Hafnarfirði 320.000
Sigríður Margrét Jónsdóttir Lifandi Thorsplan 300.000
Stefán Ingvar Vigfússon Rannsókn um sviðsetningu karlmennsku 250.000
Stefán Ómar Jakobsson Jazzkvartettinn Þula ásamt gestaleikurum, tónleikar 150.000
Tinna Bessadóttir Álfahátíð á Jónsmessu í Hellisgerði 350.000

 Hafnarfjarðarbær óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju! 

Ábendingagátt