Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðar hefur eftirlit með öllum greftri og framkvæmdum í landi bæjarins.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Aðsókn á viðburði á Bókasafninu jókst um 81% milli ára. Hátíðin Heimar og himingeimar sprakk út og sóttu 10 þúsund hana. Árið 2025 var síðasta ár safnsins við Strandgötu 1. Það flytur í ár í Fjörð.
„Heimar og himingeimar stóðu upp úr á árinu 2025. Aðsóknin á þessa búninga- og leikjasamkomu fór fram úr okkar björtustu vonum. Við segjum 10 þúsund og vitum að það er svo sannarlega ekki ofáætlað,“ segir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar, beðin um að nefna hápunkt ársins.
„Heimarnir eru birtingamynd nýrra tíma á bókasöfnum landsins. Ævintýri bókanna lifna við. Hér eiga allir sinn stað og heim,“ segir Sigrún. „Hátíðinn er komin til að vera og verður næst haldin fyrstu helgina í september á nýja safninu okkar í Firði.“
Já, það er stórt ár framundan. Bókasafnið flytur í Fjörð, stækkar, nútímavæðist og verður sem fyrr vinsæll áningarstaður.
„Gestafjöldinn var 126 þúsund í ár, og jókst um 19%,“ segir Sigrún um aðsóknina á safnið. „Útlán voru 128 þúsund og jukust um 4%.“ Það er ekki eina aukningin sem Bókasafnið sá í ár. Sókn á viðburði jókst um 81% á milli ára.
„Þetta eru allir viðburðirnir okkar; fjölskyldustundir, sögustundir, rithöfundar í heimsókn. Alls konar.“
Sigrún nefnir fleiri sigra á árinu. Bóksafnið hafi verið á faraldsfæti og heimsótt Vísindavökuna í Hörpu. „Þar var Hugrún Margrét með þemakassana sína, hennar eigin frumkvöðlastarfsemi hér sem hefur slegið í gegn. Frábært verkefni sem fer í skóla og leikskóla bæjarins, Öll slott uppbókuð og heimsóttu til að mynda 3000 hornið okkar á Vísindavökunni.“
Fréttaritara finnst nú forstöðumaðurinn gleyma einu lykilatriði ársins. Pólsku heiðursviðurkenningunni sem hún og Katarzyna Chojnowska, Kasia, fyrrum starfsmaður bóksafns Hafnarfjarðar, fengu fyrir pólsku menningarviðburðina og starfið á bókasafninu. Sigrún er stolt og nú hefur Sylwia Zajkowska tekið við starfinu á safninu. „Við höldum pólskri menningu á lofti. Sylwia horfir til nútímans og þess sem til dæmis pólskir listamenn gera á Íslandi. Það er flott,“ segir Sigrún.
„Já, við höldum áfram á sömu braut og gefum öllum landsmönnum færi á að koma á bókasafnið. Við hlökkum til að taka á móti Hafnfirðingum og gestum á nýja bókasafninu okkar í Firði. Þetta verður menningarhús, þar sem hittumst og eigum góðar stundir.“
Sett verður upp listasmiðja í um 70 fermetra rými í Læk, sem athvarf fyrir einstaklinga með geðrænan vanda. Forstöðumaður Lækjar,…
624 sykurpúðar voru grillaðir í boði Bókasafnsins á varðeldi á Byggðasafnstorginu í aðdraganda jóla. Björn Pétursson bæjarminjavörður fer yfir hápunkta…
Umfangsmikil vinna hefur átt sér stað í Hafnarfirði sem tengist farsæld barna og samþættingu þjónustu.
Bæjarstjóri skoðaði nýja fjölbýlishúsið að Suðurgötu 44 og segir það fallegt dæmi um þéttingu sem eykur gæði hverfisins og virðir…
Útnefning bæjarlistamans Hafnarfjarðar fyrir árið 2026. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum ábendingum sem menningar- og ferðamálanefnd mun hafa til…
Aðsókn á viðburði á Bókasafninu jókst um 81% milli ára. Hátíðin Heimar og himingeimar sprakk út og sóttu 10 þúsund hana.…
Hafnarfjarðarbær hefur fengið 8.185.000 króna styrk frá barna- og menntamálaráðuneytinu til að efla íslenskukunnáttu, sjálfstraust og þátttöku starfsfólks hafnfirskra leikskóla í samfélaginu.
Ráðherra, bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Vigdísarholts skáluðu í kakói með rjóma við undirritun á samkomulagi um byggingu og rekstur nýs 108…
Hafnarfjarðarbær hefur samþykkt að veita Brynju leigufélagi stofnframlag til kaupa á 16 íbúðum til úthlutunar fyrir öryrkja. Íbúar í Hafnarfirði…
Gestafjöldi í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar, jókst um 14% milli ára. Fjölbreytt ár framundan í breyttum miðbæ Hafnarfjarðarbæjar.