Mögulegar truflanir á afhendingu neysluvatns vegna viðhalds

Fréttir

Vegna viðhalds á vatnsveitulögn má búast við einhverjum truflunum á afhendingu neysluvatns í Hafnarfirði frá kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 21. nóvember, fram eftir morgni og jafnvel degi fimmtudaginn 22.nóvember. Vonir standa til þess að engar truflanir verði á afhendingu vatns en til öryggis er íbúum og fyrirtækjum bent á að passa sérstaklega upp á að skrúfað sé fyrir alla krana og að viðkvæm tæki séu ekki í gangi.

Bendum á neyðarsíma vatnsveitu utan opnunartíma þjónustuvers Hafnarfjarðarbæjar. Neyðarsími er 664-5646.  

Þjónustuver er opið frá kl. 08:00 – 16:00.

Þökkum skilninginn!

Ábendingagátt