Mokað frá sorpgeymslum

Fréttir

Fallegur og mikill snjór hefur fallið síðustu daga. Íbúar eru hvattir til að moka frá sorpgeymslum sínum til að greiða leið sorphirðufólks að tunnunum þannig að hægt sé að tryggja að þær séu tæmdar. Líka frá djúpgámunum.

Sorphirða er enn á eftir áætlun

Fallegur og mikill snjór hefur fallið síðustu daga. Færðin hefur seinkað för og ferðum m.a. vegna sorphirðu innan hverfa bæjarins og er staðan í dag sú að sorphirða er enn á eftir áætlun. Íbúar eru hvattir til að moka frá sorpgeymslum sínum til að greiða leið sorphirðufólks að tunnunum þannig að hægt sé að tryggja að þær séu tæmdar. Líka frá djúpgámunum. Ef aðgengið að tunnunum er ekki greiðfært þegar sorpbílar eru á ferð um hverfið eru tunnurnar ekki tæmdar fyrr en við næstu losun samkvæmt sorphirðudagatali.

Fyrirfram takk fyrir skjót viðbrögð!

Upplýsingar um sorphirðu eftir hverfum er að finna HÉR

 

Ábendingagátt