Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Um þessar mundir vinnur Hafnarborg að uppsetningu yfirlitssýningarinnar, Lengi skal manninn reyna, þar sem sýnd verða verk eftir listamanninn Þorvald Þorsteinsson (1960-2013). Á sýningunni stendur til að endurskapa eitt verka listamannsins, Myndina af Maríu, sem Þorvaldur sýndi fyrst á sýningu í Listasafninu á Akureyri árið 1996. Þá mun sýningin í Hafnarborg opna á afmælisdegi Þorvaldar, 7. nóvember næstkomandi.
Myndin af Maríu er þátttökulistaverk sem fólst í því að listamaðurinn óskaði eftir að fá myndir að láni frá þeim sem báru nafnið María og bjuggu á Akureyri. Myndirnar sýndi hann svo allar saman í einu rými safnsins, við milda lýsingu, sveipaðar helgiblæ. Vísaði hann þar til helgra Maríumynda og tengdi saman hversdagsleikann og heilagleikann í verki sínu.Nú leitar Hafnarborg til María, sem búsettar eru í Hafnarfirði, um að lána safninu myndir af sér til að sýna á væntanlegri yfirlitssýningu á verkum listamannsins. Myndin getur verið passamynd eða stærri ljósmynd, sjálfsmynd tekin á síma, mynd úr fjölskyldualbúminu, teikning eða málverk, ef slíkt er til, andlitsmynd eða heilmynd, allt eftir smekk. Þá skiptir stærð eða aldur myndarinnar ekki máli, heldur er leitast eftir því að fjölbreytni í formi og útliti verði sem mest.
Myndinni er ýmist hægt að koma til skila í afgreiðslu Hafnarborgar á opnunartíma safnsins eða í tölvupósti á netfangið hafnarborg@hafnarfjordur.is en gæta þarf að myndinni fylgi fullt nafn og símanúmer þátttakanda. Tekið verður við myndum til 10. október. Að sýningu lokinni munu þátttakendur svo geta nálgast mynd sína í afgreiðslu safnsins.
Frekari upplýsingar veitir:
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…