Myndun á skólplögn í mynni Hafnarfjarðar

Tilkynningar

Vegna viðhaldsvinnu og myndunar á skólplögn sem liggur neðan við verslunarmiðstöðina Fjörð reynist nauðsynlegt að veita skólpi í höfnina á meðan. Sjósundsunnendur eru vinsamlega beðnir að hinkra með sundsprett á þessum svæðum þar til eftir 20. nóvember.

Hinkrum með sjósund á svæðinu til 20. nóvember

Vegna viðhaldsvinnu og myndunar á skólplögn sem liggur neðan við verslunarmiðstöðina Fjörð reynist nauðsynlegt að veita skólpi í höfnina á meðan. Sjósundsunnendur eru vinsamlega beðnir að hinkra með sundsprett á þessum svæðum þar til eftir 20. nóvember. Ná tilmæli til alls mynnis Hafnarfjarðar,  þá sérstaklega á svæðinu hjá Krosseyri, við Herjólfsgötuna og Sundhöll Hafnarfjarðar.

Fyrirfram þakkir fyrir sýndan skilning!

Ábendingagátt