Næringarsáttmáli og samræmdir matseðlar

Fréttir

Leikskólar Hafnarfjarðar starfa nú eftir nýjum næringarsáttmála og elda eftir samræmdum matseðlum. Vinna við verkefnið hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hófst innleiðing þess innan leikskólanna nú um síðustu mánaðarmót. Afraksturinn byggir á mikilli greiningarvinnu, næringarútreikningum, samstarfi og samtali viðeigandi aðila ásamt mati nemenda og starfsmanna.

Leikskólar Hafnarfjarðar starfa eftir nýjum næringarsáttmála og elda eftir samræmdum matseðlum.  Vinna
við verkefnið hefur staðið yfir um nokkurt skeið og hófst markviss innleiðing þess fyrir rétt um ári síðan. Afraksturinn byggir á mikilli
greiningarvinnu, næringarútreikningum, samstarfi og samtali viðeigandi aðila ásamt
mati nemenda og starfsmanna. Næringarsáttmálinn hefur nú formlega verið gefinn út. 

Samræmdir matseðlar leikskóla Hafnarfjarðar byggja að á
matseðlum Skólar ehf. sem hefur um ára bil þróað sína matseðla og tekið m.a.
mið af mjög nákvæmum næringarútreikningum. Fyrirtækið Skólar ehf. rekur í dag
fimm heilsuleikskóla á Íslandi og hefur tekið virkan þátt í þróun verkefnisins
heilsueflandi leikskóli í samvinnu við Embætti landlæknis.  Ólöf Kristín Sívertsen hefur starfað sem verkefnastjóri næringarsáttmálans og unnið að innleiðingu hans og samræmingu matseðla með leikskólastjórum og matráðum leikskólanna. Hafnarfjarðarbær lítur á það sem eitt af hlutverkum sínum að tryggja heilsusamlega
næringu í sínum skólum. Þetta breytta fyrirkomulag stuðlar ekki eingöngu að hollu
mataræði og heilbrigðum matarvenjum heldur auðveldar fyrirkomulagið líka
skipulag og hjálpar til við að draga úr matarsóun og þar með verndun á umhverfinu, eins og fram kemur í sáttmálanum sjálfum. 

Naeringarsattmalinn

Í næringarsáttmála leikskóla Hafnarfjarðar kemur m.a fram að
holl og góð næring er öllum mikilvæg og þá ekki síst börnum sem eru að vaxa og
þroskast og sýna rannsóknir að mataræði barna hefur áhrif á vellíðan þeirra og
heilsu. Leikskólar Hafnarfjarðar eru mikilvægir þátttakendur í uppbyggingu
heilsueflandi samfélags og vill Hafnarfjarðarbær með þessu mikilvæga verkefni fylgja
eftir opinberum ráðleggingum um mataræði og bjóða börnum skólanna upp á
fjölbreytt hráefni sem eru rík af næringarefnum frá náttúrunnar hendi. 

Ábendingagátt