Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar formlega í dag aðstöðu eins og hún gerist best í Evrópu. Aðstaðan er fyrir iðkendur á öllum aldri á hjólabrettum, hlaupahjólum, BMX og fjallahjólum.
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur komið sér vel fyrir í nýrri og glæsilegri brettahöll að Selhellu 7 í Hafnarfirði og opnaði þar formlega í dag aðstöðu eins og hún gerist best í Evrópu. Aðstaðan er fyrir iðkendur á öllum aldri á hjólabrettum, hlaupahjólum, BMX og fjallahjólum. Mikið og gott samstarf hefur átt sér stað á milli félagsins og heilsubæjarins Hafnarfjarðar sem vill auka veg og vanda þessara íþróttagreina í sveitarfélaginu.
„Það eru ekki allir sem finna sig í hópíþróttum eða þessum hefðbundnu íþróttagreinum sem standa börnum og ungmennum til boða um allan bæ. Heilsubærinn Hafnarfjörður hefur stutt vel við þær greinar með góðum árangri og með opnun þessarar brettahallar viljum við sýna í verki að jaðaríþróttir og framtak félaga eins og Brettafélags Hafnarfjarðar skiptir gríðarlega miklu máli fyrir stóran hóp ungmenna,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. “Hafnarfjörður er þegar farinn að uppskera með meisturum á sviðinu og er ég þess fullviss að með þessari frábæru nýju aðstöðu þá muni brettaíþróttin blómstra sem aldrei fyrr,“ segir Rósa.
Eigendur og stofnendur BFH þau Jóhann Óskar Bergþórsson formaður stjórnar BFH og Arnfríður Kristín Arnardóttir gjaldkeri með Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra.
Brettafélagið, sem var áður með aðstöðu í gömlu slökkviliðsstöðinni í Flatahrauni, hefur nú til umráða um 800 fermetra svæði undir starfsemi félagsins í stórum og glæsilegum sal á nýjum stað. Síðustu vikur og mánuði hefur öflugt teymi á vegum félagsins unnið að mótun og uppbyggingu á aðstöðunni og það meðal annars með aðstoð erlendra sérfræðinga. Teymi frá Bandaríkjunum og Danmörku sem býr að reynslu af uppbyggingu tuga brettagarða um alla heim var fengið til landsins til að sjá um verkefnið. Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar um að taka á leigu Selhellu 7 í Hafnarfirði var tekin í árslok 2023 og síðan þá hafa hlutirnir gerst hratt. Brettahöllin mun meðal annars hýsa æfingar og keppni snjó- og hjólabretta auk BMX reiðhjóladeilda Brettafélagsins. Flutningurinn í nýtt húsnæði markar tímamót og byltingu í aðstöðu fyrir Brettafélag Hafnarfjarðar sem er 400 iðkenda félag og þá bæjarbúa sem stunda þessar tegundir íþrótta.
Hafnarfjarðarbær óskar Brettafélagi Hafnarfjarðar til hamingju með aðstöðuna og hlakkar til áframhaldandi samstarfs!
Forsíðumynd: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, Jóhann Óskar Bergþórsson formaður stjórnar BFH, Arnfríður Kristín Arnardóttir gjaldkeri BFH og Kristín Thoroddsen formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar.
Ég vil þakka kæru samstarfsfólki og ykkur bæjarbúum fyrir samstarfið og samveruna, traustið og hlýjuna á liðnum árum. Ég óska…
Hér má sjá hvernær sundlaugarnar okkar, bókasafnið, byggðasafnið, þjónustuver og Hafnarborg eru opnar yfir hátíðarnar. Einnig má hér finna hagnýtar…
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…