Ný jafnréttisáætlun

Fréttir

Ný jafnréttisáætlun fyrir Hafnarfjarðarbæ liggur nú fyrir. Áætlunin tekur til sex þátta sem hver fyrir sig er vel markaður með markmiðum, aðgerðum, ábyrgð og tímaramma. 

Í upphafi árs
var óskað eftir innleggi frá íbúum og öðrum áhugasömum að efni í
jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar. Nú liggur ný áætlun fyrir og er vinna við jafnréttisstefnu einnig vel á veg komin. Markmið með
jafnréttisáætlun Hafnarfjarðarbæjar er að stuðla að jafnrétti kynjanna og að
kynja- og jafnréttissjónarmið verði samþætt allri starfsemi bæjarins.
Aðgerðaáætlunin byggir á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og
jafnréttisstefnu Hafnarfjarðarbæjar sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 1.
febrúar 2012 og Evrópusáttmála um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum
og héruðum sem undirritaður var árið 2008.

Jafnréttisáætlun tekur meðal annars á eftirfarandi þáttum:

  • Launajafnrétti
  • Laus störf, starfsþjálfun og
    endurmenntun
  • Sveigjanleiki til að samræma
    fjölskyldulíf og atvinnulíf
  • Kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni,
    kynbundið ofbeldi og einelti
  • Unnið gegn mismunun á vinnustöðum og
    möguleikar fólks með mismunandi starfsgetu auknir
  • Áhersla á samþættingu kynjasjónarmiða í öllu
    starfi bæjarins

Hver þáttur er
vel markaður með markmiðum, aðgerðum, ábyrgð og tímaramma.

Jafnréttisáætlun í heild
sinni má finna hér

Ábendingagátt