Ný þemasýning í forsal Pakkhússins

Fréttir

Byggðasafn Hafnarfjarðar opnar nýja þemasýningu í forsal Pakkhússins að Vesturgötu 6, miðvikudaginn 1. júní kl. 17:00. Sýningin ber heitið „Frú Þorbjörg Bergmann, fyrsti hafnfirski safnarinn.“ Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra flytur ávarp við opnunina.

Frú Þorbjörg Bergmann, fyrsti hafnfirski safnarinn 

Byggðasafn Hafnarfjarðar opnar nýja þemasýningu í forsal Pakkhússins að Vesturgötu 6 á 114 ára afmælisdegi Hafnarfjarðar miðvikudaginn 1. júní kl. 17. Sýningin ber heitið „Frú Þorbjörg Bergmann, fyrsti hafnfirski safnarinn.“ Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra flytur ávarp við opnunina.

NyLjosmyndasyning

Líf og söfnunarstarf Þorbjargar Sigurðardóttur Bergmann 

Sýningin fjallar um líf og söfnunarstarf Þorbjargar Sigurðardóttir Bergmann sem var fædd í Pálsbæ á Seltjarnarnesi 13. apríl árið 1876. Að loknu Kvennaskólanámi árið 1898 réðst Þorbjörg í vinnu á Bíldudal þar sem hún kynntist mannsefni sínu, Sigfúsi Bergmann en þau gengu í hjónaband aldamótaárið 1900. Sama ár fluttu þau til Hafnarfjarðar og urðu fljótlega áberandi í bæjarlífinu. 

Munir Þorbjargar mynduðu grunninn að Árbæjarsafni 

Þorbjörg byrjaði snemma að safna þjóðlegum munum og virðist hennar helsta markmið hafa verið að bjarga þeim frá glötun. Hún gerði sér grein fyrir þeim breytingum sem voru að verða á íslensku samfélagi og nauðsyn þess að varðveita hina ýmsu muni sem segja má að hafi verið dæmigerðir í gamla íslenska bændasamfélaginu. Um 400 munir voru í safni Þorbjargar Bergmann sem færðir voru Reykjavíkurfélaginu árið 1952 og síðar gefnir Árbæjarsafni árið 1958, munirnir mynduðu grunninn að Árbæjarsafni. Á sýningunni í Pakkhúsinu eru munir úr safni Þorbjargar sem fengnir voru að láni frá Borgarsögusafni; Árbæjarsafni og afkomendum Þorbjargar.

Ábendingagátt