Hafnfirðingur til fyrirmyndar

Fréttir

Ný útsýnisskífa á toppi Helgafells var vígð formlega í gær að viðstöddu fjölmenni. Heiðurinn að framkvæmdinni á Rótarý klúbbur Hafnarfjarðar í samstarfi við Rio Tinto Alcan, Verkfræðistofuna Mannvit og fleiri góða aðila. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, var viðstödd vígsluna og fékk að nýta tækifærið til að afhenda Rúnari Pálssyni viðurkenningu fyrir framlag sitt til Helgafellsins.

Ný útsýnisskífa á toppi Helgafells var vígð formlega í gær að viðstöddu fjölmenni. Heiðurinn að framkvæmdinni á Rótarý klúbbur Hafnarfjarðar í samstarfi við Rio Tinto Alcan, Verkfræðistofuna Mannvit og fleiri góða aðila. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Rósa Guðbjartsdóttir, var viðstödd vígsluna og fékk að nýta tækifærið til að afhenda Rúnari Pálssyni viðurkenningu fyrir framlag sitt til Helgafellsins.

IMG_3307

Ný útsýnisskífa á Helgafelli vígð formlega

Rúnar Pálsson hlaut nýju nafnbótina og viðurkenninguna Hafnfirðingur til fyrirmyndar á toppi Helgafellsins. Rúnar fer nær daglega á fjallið og þá ýmist gangandi, hjólandi eða hlaupandi. Hann hefur til 22 ára séð um gestabókina á Helgafelli og á í dag dágott safn af gestabókum í bílskúrnum hjá sér. Gróflega má áætla að Rúnar eigi í dag um 150 bækur með alls konar skemmtilegum kveðjum frá gestum og gangandi víðs vegar að úr heiminum. Hugmyndin að gestabók á svæðinu og framkvæmdin í heild var upphaflega hans og hefur verkefnið fylgt honum öll þessi ár. Yfir sumartímann hefur Rúnar farið með eina eða fleiri gestabækur á fjallið enda þær fljótar að fyllast þegar umferðin er mikil. Bækurnar fyllast hægar yfir vetrartímann en umferðin samt orðin ótrúlega mikil um fjallið allt árið um kring þar sem „líkamsræktarstöðin“ Helgafell hentar fólki á öllum aldri og af öllum stærðum og gerðum og þjóðernum.

IMG_3402Rúnar Pálsson skrifar hér í “sína eigin gestabók” á toppi Helgafells  

Þakkir fyrir óeigingjarnt framlag í þágu samfélagsins

Heilsubærinn Hafnarfjörður vill með þessari viðurkenningu til Rúnars þakka honum innilega fyrir óeigingjarnt framlag sem er til mikillar fyrirmyndar. Einstaklingsframtak sem nær til alls samfélagsins og fleiri fá að njóta góðs af. Það eitt að setja upp geymslu fyrir gestabók og setja upp fyrsta eintakið er ekki sjálfgefið en að fylgja verkefni sínu og framkvæmd eftir í 22 ár er hvatningar- og lofsvert. Með þessu framlagi og þessari hvatningu vill Hafnarfjarðarbær leggja sitt af mörkum til verkefnisins. „Við viljum á þessum fallega degi og við þetta frábæra tilefni þakka Rúnari fyrir óeigingjarnt framlag sitt í þágu samfélagsins og á sama tíma þakka Rótarý klúbb Hafnarfjarðar og öllum þeim sem komu að uppsetningu á þessari stórglæsilegu útsýnisskífu fyrir þeirra framlag og framtak. Það eru einstaklingarnir, félögin og fyrirtækin sem bæinn byggja sem gera bæinn einstakan. Við í Hafnarfirði erum rík af fólki sem láta sig samfélagið og umhverfið varða og fyrir það erum við afar þakklát“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir eftir vígsluna á toppi Helgafellsins í gær.  

IMG_3430

Ný útsýnisskífa og gestabók á Helgavelli með fallega Fjörðinn í baksýn

Fleiri myndir er að finna á Facebooksíðu Hafnarfjarðarbæjar 

Ábendingagátt