Nýjar leiguíbúðir fyrir fatlað fólk

Fréttir

Samkomulag undirritað um lóð og leiguíbúðir að Öldugötu

Landssamtökin Þroskahjálp og Hafnarfjarðarbær skrifuðu í dag undir samkomulag vegna lóðar að Öldugötu 41 í Hafnarfirði. Til stendur að húsbyggingarsjóður Þroskahjálpar reisi þar leiguíbúðir ætlaðar sex fötluðum einstaklingum. Áætlað er að húsið verði tilbúið til notkunar 2018.

Í dag skrifuðu Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri, Sveinn E. Sigurðsson formaður Húsbyggingarsjóðs og Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar undir samkomulag um uppbyggingu íbúðakjarna fyrir fatlaða einstaklinga í Hafnarfirði að Öldugötu 41. Markmiðið er að byggja húsnæði sem gerir fötluðu fólki kleift að búa á eigin heimili í samræmi við þarfir og óskir eftir því sem kostur er, tryggja þeim jafnrétti til búsetu og skapa skilyrði til eðlilegs lífs og þátttöku í samfélaginu. Hlutaðeigandi aðilar eru að vonum ánægðir með samkomulagið og þótti viðeigandi að skrifa undir á Alþjóðadegi fatlaðs fólks sem haldinn er 3. desember ár hver. Dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur frá árinu 1981.

Hér má sjá þau Rannveigu Einarsdóttur sviðsstjóra fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Svein E. Sigurðsson formann Húsbyggingarsjóðs, Harald L. Haraldsson bæjarstjóra, Árna Múla Jónasson framkvæmdastjóra Þroskahjálpar, Ásdísi Elínu Auðunsdóttur forstöðumann Einibergs og Hrönn Harðardóttur deildarstjóra hjá Fjölskylduþjónustu.

Nánari upplýsingar um þjónustu Hafnarfjarðarbæjar við fatlaða einstaklinga er að finna
hér.

Nánari upplýsingar veitir Árdís Ármannsdóttir, samskiptastjóri Hafnarfjarðarbæjar – netfang:
ardis@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt