Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Föstudagskvöldið 26. ágúst kl. 20 verða tvær sýningar opnaðar í Hafnarborg. Haustsýning Hafnarborgar 2016, sýningin Tilraun – leir og fleira, í aðalsal safnsins og svo sýning sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla, í Sverrissal Hafnarborgar þar sem hún mun flytja gjörning á opnuninni.
Sýningin er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar. Þátttakendur sýningar koma úr ólíkum starfstéttum sjónlista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin mismunandi orð til að vinna þau útfrá. Útkoman eru annarsvegar fullgerð verk á meðan önnur sýna rannsókn eða vinnuaðferð. Sýnendur eru: Aldís Bára Einarsdóttir, Anna Hallin, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Brynjar Sigurðarson, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Erna Elínbjörg Skúladóttir, Hanna Dís Whitehead, Hildigunnur Birgisdóttir, Daniel Durnin, Garðar Eyjólfsson, Gunnhildur Helgadóttir, Olga Bergmann, Páll Einarsson, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigga Heimis, Sigrún Jóna Norðdahl, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Hauksson, Sigurlína Margrét Osuala, Theodóra Alfreðsdóttir og Veronika Sedlmair.
Sýningarstjórn er í höndum hönnunartvíeykisins TOS sem skipað er þeim Hildi Steinþórsdóttur arkitekt og Rúnu Thors vöruhönnuði en hugmynd þeirra að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2016.
Sýningarstjórar verða með sýningarstjóraspjall fyrir gesti laugardaginn 27. ágúst kl. 14.
Tilraun – leir og fleira er sjötta sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni, sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið 2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012, sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu, haustið 2013, Rás, sýning Helgu Þórsdóttur, haustið 2014 og sýning Aðalheiðar Valgeirsdóttur og Aldísar Arnardóttur listfræðinga, Heimurinn án okkar haustið 2015. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Hafnarborg kallar nú eftir tillögum að haustsýningu árið 2017. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Hafnarborgar: www.hafnarborg.is
Sýning og gjörningur sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla tekur á hvernig neyslu og framleiðslu er háttað í dag og hvernig gera má betur í framtíðinni. Í gjörningi sínum í Hafnarborg setur hún upp framleiðsluferli þar sem hún lætur reyna á hvernig ólíkir þættir hins handgerða og fjöldaframleidda geta haldist í hendur.
Jenny Nordberg er iðnhönnuður búsett í Svíþjóð sem hefur hlotið viðurkenningar og lof sem framsækinn hönnuður á alþjóðavettvangi. Jenny staðsetur sig á milli myndlistar og hönnunar og leitast við að víkka út hugmyndir samtímans um hönnun og hönnuði. Verkefnið er styrkt af sænska sendiráðinu á Íslandi.
Bæjarstjórn og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sendir íbúum og gestum heilsubæjarins Hafnarfjarðar hugheilar hátíðarkveðjur með hjartans þökk fyrir samstarf og samveru á…
Hér má sjá hvernær sundlaugarnar okkar, bókasafnið, byggðasafnið, þjónustuver og Hafnarborg eru opnar yfir hátíðarnar. Einnig má hér finna hagnýtar…
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…