Hoppandi gleði á Óla Run túni

Fréttir

Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, miðvikudaginn 17. júní, var nýr ærslabelgur opnaður á Óla Run túni. Belgurinn er annar belgur sinnar tegundar í Hafnarfirði en sá fyrsti, ærslabelgur á Víðistaðatúni, var opnaður formlega í júní 2019.

Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, miðvikudaginn 17. júní, var nýr ærslabelgur opnaður á Óla Run túni. Belgurinn er annar belgur sinnar tegundar í Hafnarfirði en sá fyrsti, ærslabelgur á Víðistaðatúni, var opnaður formlega í júní 2019. Mikil ánægja er með nýja belginn og hafa mörg hoppin og ófá hlátrasköllin verið tekin á belgnum frá uppsetningu hans og opnun.

Hvað er ærslabelgur?

Ærslabelgurinn er niðurgrafin loftknúna hoppudýnu sem er jafnhá landslaginu og er hugsuð fyrir fólk á öllum aldri. Mikið líf og fjör hefur verið á Óla Run túni frá því að  belgurinn var settur þar upp og ljóst að hann hefur mikið og gott aðdráttarafl. Ærslabelgurinn hefur þannig ekki bara skapað vettvang fyrir skemmtilega og öðruvísi heilsueflingu heldur einnig vettvang fyrir fólk og nágranna á öllum aldri til að koma saman og rækta samfélagsandann. Svæðið á Óla Run túni þykir tilvalið og framkvæmdin til þess fallin að skapa meira líf á túninu.  Allir „hopparar“ eru vinsamlegast beðnir um að skemmta sér kostulega en fara á sama tíma varlega og eftir þeim umgengnisreglum sem settar hafa verið upp við belginn. Belgurinn er tímastilltur og verður loft í honum frá kl. 9 – 22 alla daga í sumar.

ReglurAerslabelgur2020Allir hopparar eru beðnir um að fara eftir settum reglum og leiðbeiningum við belginn þannig að líf haldist í honum. 

Kjörinn vettvangur fyrir ræktun heilsu og samfélagsanda

Allt frá því að ákvörðun bæjaryfirvalda í Hafnarfirði um kaup og uppsetningu á ærslabelgi á Víðistaðatúni var tekin vorið 2019 lá fyrir vilji fyrir því að setja upp belgi á fleiri stöðum í bænum. Til að framfylgja ákvörðun og vilja bæjaryfirvalda lagði stýrihópur á bak við Heilsubæinn Hafnarfjörð til á fundi sínum í maí 2020 að nýr og glæsilegur ærslabelgur yrði keyptur og settur upp á Óla Run túni sumarið 2020. Framkvæmdir hófust fljótt í framhaldinu og nú hefur belgurinn verið opnaður. 

IMG_5671Fyrsti ærslabelgurinn var settur upp á Víðistaðatúni sumarið 2019. 

Ábendingagátt