Nýr hverfisgarður við Engjavelli
Framkvæmdir við nýjan hverfisgarð við Engjavelli hefjast í ágúst. Lagt er upp með að styrkja svæðið í kringum körfuboltavöll norðan við Hraunvallaskóla. Bætt verður við leiktækjum, gerðar manir og fallegum gróðri komið fyrir. Allt yfirborð svæðisins verður endurgert fyrir lok sumars 2025 og sett niður tvö ný og stór leiktæki.
Grænkun Valla heldur áfram
Framkvæmdir við nýjan hverfisgarð við Engjavelli hefjast í ágúst. Lagt er upp með að styrkja svæðið í kringum körfuboltavöll norðan við Hraunvallaskóla. Bætt verður við leiktækjum, gerðar manir og fallegum gróðri komið fyrir. Allt yfirborð svæðisins verður endurgert fyrir lok sumars 2025 og sett niður tvö ný og stór leiktæki. Á næsta ári verður fleiri leiktækjum bætt við auk grillaðstöðu fyrir íbúa og aðra gesti.
Hugmyndir sem fela í sér óhreyft hraun í bland við samverusvæði
Opinn kynningarfundur um grænkun Valla var haldinn í Hraunvallaskóla á vormánuðum þar sem farið var yfir hugmyndir að grænum svæðum, hverfagörðum og göngustígum á svæðinu. Landslag arkitektar hafa unnið góðar hugmyndir sem byggja meðal annars á ábendingum íbúa hverfisins. Í hugmyndum er áhersla lögð á að óhreyft hraunið sem einkennir fallega Vallahverfi fái að njóta sín en inn á milli gert ráð fyrir göngustígum, sleðabrekkum, rennibrautum, sem og svæðum þar sem hægt er að leggjast í stórmöskva net með bók í hönd.
Já, Vellirnir verða grænni með hverju árinu sem líður.
