Nýr leikskóli á Völlunum
Skipulags- og byggingarráð hefur samþykkt að hefja byggingu á nýjum 4 deilda leikskóla við Bjarkavelli. Framkvæmdir við skólann hefjast síðar á þessu ári og stefnt er að því að hann verði tekinn í notkun 2016.
Skipulags- og byggingarráð hefur samþykkt að hefja byggingu á nýjum 4 deilda leikskóla við Bjarkavelli.
Leikskólinn verður byggður samkvæmt teikningum Sigurlaugar Sigurjónsdóttur. Framkvæmdir við skólann hefjast síðar á þessu ári og stefnt er að því að hann verði tekinn í notkun 2016
Á Völlunum búa nú hátt í 5000 manns og bætir leikskólinn úr brýnni þörf fyrir leikskólapláss í hverfinu.
Í Hafnarfirði eru 17 leikskólar og þar af eru þrír einkareknir skólar með þjónustusamning við Hafnarfjarðarbæ. Hver leikskóli hefur sína sérstöðu með áherslu á ákveðna stefnu eða þætti í starfinu og má finna upplýsingar um þá hér á heimasíðu bæjarins.