Nýr skólastjóri Engidalsskóla hefur verið ráðinn

Fréttir

Margrét Halldórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra við Engidalsskóla í Hafnarfirði. Hún tekur við stjórnun skólans frá og með 1. ágúst næstkomandi en mun í vor koma að skipulagi skólastarfsins fyrir næsta skólaár.

MargretHalldorsdottir

Margrét hefur meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst, Diplóma í opinberri stjórnsýslu og B.Ed próf frá KHÍ. Í vor lýkur hún M.Ed í tómstunda- og félagsmálafræði frá HÍ. Margrét hefur langa kennslureynslu og hefur komið að skólamálum úr ólíkum áttum, m.a starfað sem sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs Ísafjarðarbæjar og þar á undan sem íþrótta- og tómstundafulltrúi í sama sveitarfélagi. Þar hefur hún farið fyrir innleiðingu á heilsueflandi samfélagi, upplýsingatækni í grunnskólum, átaksverkefni í íslensku og stærðfræði ásamt stefnumótunarvinnu í skólamálum, íþrótta- og forvarnarmálum.

Við bjóðum Margréti velkomna í hóp öflugra skólastjórnanda í Hafnarfirði!

Ábendingagátt