Nýr umhverfis- og veitustjóri
Guðmundur Elíasson er nýr umhverfis- og veitustjóri í Hafnarfirði. Guðmundur hóf störf nú í byrjun janúar.
Guðmundur Elíasson er nýr umhverfis- og veitustjóri í Hafnarfirði.
Guðmundur er með víðtæka stjórnunarreynslu á sviði umhverfismála, mannvirkjagerðar og veitureksturs og hefur starfað sem yfirmaður umhverfismála, framkvæmda- og veitusviða í Árborg og Fjarðabyggð.
Guðmundur er með meistaragráðu (M.Sc.) í iðnaðar- og rekstrarverkfræði við Álaborgarháskóla frá árinu 1993 og B.Sc. bakkalárgráðu í véltæknifræði frá Odense Teknikum. Þá stundaði hann nám við Vélskóla Íslands á árunum 1979 til 1983.
Við bjóðum Guðmund velkominn til starfa en hann hóf störf í byrjun janúar.