Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Heilbrigðisráðuneytið og Hafnarfjarðarbær hafa gert með sér samning sem felur í sér endurgerð húsnæðis gamla Sólvangs þar sem komið verður á fót nýrri tegund sérhæfðrar þjónustu fyrir aldraða.
Heilbrigðisráðuneytið og Hafnarfjarðarbær hafa gert með sér samning sem felur í sér endurgerð húsnæðis gamla Sólvangs þar sem komið verður á fót nýrri tegund sérhæfðrar þjónustu fyrir aldraða. Í húsinu verða rými til skammtíma- og hvíldarinnlagna fyrir 39 einstaklinga þar sem veitt verður létt endurhæfing og lagt mat á frekari stuðningsþarfir viðkomandi. Gert er ráð fyrir að árlega verði hægt að veita að minnsta kosti 250 einstaklingum þessa þjónustu. Markmiðið er að efla getu fólks til að búa lengur heima. Að auki verður opnuð ný hjúkrunardeild í húsinu með aðstöðu fyrir 11 einstaklinga. Heilbrigðisráðuneytið mun veita Hafnarfjarðarbæ 120 milljónir króna vegna verkefnisins.
Eitt af meginmarkmiðum þjónustunnar er að beita forvörnum sem dregið geta úr líkum á alvarlegum heilsubresti sem útheimtir þjónustu á bráðamóttöku eða leiðir til ótímabærrar innlagnar á sjúkrahús. Þjónustunni er þannig ætlað að létta álagi af Landspítala, auka stuðning við aðstandendur aldraðra sem oft eru undir miklu álagi og síðast en ekki síst að bæta lífsgæði þeirra öldruðu sem þjónustunnar njóta og gera þeim betur kleift að búa lengur heima en ella.
Heilbrigðisráðherra og bæjarstjóri undirrituðu samkomulagið að viðstöddum fulltrúum úr verkefnastjórn hjúkrunarheimilisins, starfsfólki Heilbrigðisráðuneytisins og starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar
Samlegðaráhrif með rekstri hjúkrunarheimilis Sólvangs
Gert er ráð fyrir að húsnæði Sólvangs verði tilbúið undir rekstur þjónustunnar fyrir lok ársins og verður Sjúkratryggingum Íslands falið að bjóða út reksturinn. Horft er til þess að þjónustan verði á sömu hendi og rekstur hjúkrunarheimilis Sólvangs þar sem samnýta megi ýmsa aðstöðu í þágu notenda. Áhersla verður lögð á samvinnu við heilsueflandi móttökur á heilsugæslustöðvum og aðra þjónustu heilsugæslustöðva sem snýr að öldruðum.
Svandís Svavarsdóttir: „Það er frábært að þetta verkefni sé komið á framkvæmdastig. Við þurfum mun fjölbreyttari þjónustu til að mæta þörfum aldraðra en tíðkast hefur og við þurfum miklu meiri nýsköpun á þessu sviði. Þetta verkefni er liður í þeirri hugsun, rétt eins og var markmið með því að koma á fót heilsueflandi móttökum á heilsugæslustöðvum og með nýlegum samningi við Reykjavíkurborg um stofnun öldrunarteymis sem sinnir sérhæfðri heimahjúkrun við aldraða.“
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fagnar þessum ánægjulega áfanga í þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu: „Við höfum sett nýsköpun í þjónustu í forgang með áherslu á heilsueflingu aldraðra. Um er að ræða nýja nálgun til að styðja við búsetu eldri borgara í heimahúsum sem miðar að því að bæta lífsgæði og heilsu eldri borgara og gera fólki kleift að búa sem lengst heima.“
Sólvangur fær nýtt og endurnýjað hlutverk og verður miðstöð þjónustu fyrir aldraða í sveitarfélaginu eins og lengi hefur verið stefnt að. „Það er mjög ánægjulegt að halda áfram uppbyggingu öldrunarþjónustu á þessum stað. Hafnarfjarðarbær hefur lagt áherslu á fyrirbyggjandi stuðning við eldri borgara með markvissri heilsueflingu og fellur þetta nýja verkefni á Sólvangi afar vel að þeim áherslum bæjarins,“ segir Rósa.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Hafnarfjarðarbær rekur nú þegar dagþjálfun fyrir aldraða á fyrstu hæð gamla Sólvangs. Þetta eru almenn rými og einnig sérhæfð rými fyrir einstaklinga með heilabilun sem nýlega var fjölgað um 12. Þegar breytingum á húsnæðinu lýkur er gert ráð fyrir opnun nýrrar hjúkrunardeildar fyrir 11 einstaklinga á 2. hæð hússins. Á 3. og 4. hæðinni verður aðstaða fyrir þá einstaklinga sem njóta munu þjónustu og endurhæfingar í skammtíma- og hvíldarinnlögnum, en eins og fyrr segir verður þar aðstaða fyrir 39 einstaklinga á hverjum tíma.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landsambands eldri borgara óskaði bæjarstjóra og heilbrigðisráðherra til hamingju með samkomulagið
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…