Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær hefur síðustu mánuði veitt hættunni á mansali sérstaka athygli og farið markvisst yfir innkaupaferla og útboðsskilmála með það fyrir augum að vernda þá sem eru í viðkvæmri stöðu gagnvart mansali. Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Hafnarfjarðar í vikunni var samþykkt nýtt ákvæði um mansal í útboðsskilmála bæjarins.
Hafnarfjarðarbær hefur síðustu mánuði veitt hættunni á mansali sérstaka athygli og farið markvisst yfir innkaupaferla og útboðsskilmála með það fyrir augum að vernda þá sem eru í viðkvæmri stöðu gagnvart mansali. Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar í vikunni var samþykkt nýtt ákvæði um mansal í útboðsskilmála bæjarins.
Nýju ákvæði um mansal verður bætt við alla útboðsskilmála Hafnarfjarðarbæjar og vill sveitarfélagið með þessu leggja sitt að mörkum við afnám mansals á Ísland. Samhliða hefur hluti starfsfólks og eftirlitsaðilar á vegum bæjarins fengið fræðslu um hvernig bera megi kennsl á mansal og mun sú fræðsla halda áfram næstu mánuði. Fulltrúar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru með fræðslu fyrir stóran hóp af starfsfólki í vor og munu vera með kynningu fyrir alla stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar um miðjan nóvember.
Ný samþykkt felur í sér að með undirritun tilboða lýsir bjóðandi því yfir að hann mun tryggja að allir starfsmenn sem koma að verki, hvort sem er starfsmenn bjóðanda eða undirverktaka, fái laun og starfskjör í samræmi við gildandi kjarasamninga hverju sinni og aðstæður þeirra séu í samræmi við löggjöf á sviði vinnuverndar. Jafnframt tryggir verktaki og ber ábyrgð á að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við samninginn, gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni. Að auki ber bjóðandi ábyrgð á og skal hafa í gildi og viðhalda tryggingum fyrir tjóni vegna slysa, veikinda, sjúkdóma, sjúkrakostnaðar eða dauða sem starfsmenn verktaka verða fyrir og rekja má til framkvæmda. Bjóðandi ber ábyrgð á að undirverktakar og starfsmannaleigur og starfsmenn þeirra hafi samskonar tryggingar. Hvenær sem er á samningstíma þarf bjóðandi að geta sýnt verkkaupa fram á að öll réttindi og skyldur gagnvart þessum starfsmönnum séu uppfyllt. Bjóðandi samþykkir með undirritun að ef hann getur ekki framvísað gögnum eða sýnt eftirlitsmanni verksins fram á að samningsskyldur séu uppfylltar innan 5 daga frá því ósk um slíkt er borin fram af verkkaupa getur verkkaupi rift verksamningi án frekari fyrirvara eða ákveðið að beita dagsektum sem nemur 0,1% af samningsupphæð fyrir hvern dag sem umbeðnar upplýsingar skortir.
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.