Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Árið 2023 munu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu taka upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi. Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem taka gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaðan úrgang.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kjósarhreppur, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa unnið ötullega að undirbúningi nýja kerfisins á undanfarin tvö ár Stefnt er að því að innleiðing breytinganna hefjist á vormánuðum 2023. Nánari útfærslur í hverju sveitarfélagi verða kynntar síðar.
Íbúar þurfa ekki að aðhafast neitt í tengslum við þessa breytingu annað en að tileinka sér nýja flokkunarsiði. Tunnum fyrir þessa fjóra flokka verður komið fyrir við íbúðarhús eftir þörfum. Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við íbúðarhús. Í hinu nýja kerfi verða því að jafnaði tvær til þrjár tunnur við sérbýli þar sem boðið verður upp á tvískiptar tunnur en í fjölbýlishúsum fer útfærsla eftir aðstæðum á hverjum stað. Hægt er að sjá mögulegar útfærslur á vefnum www.flokkum.is. Þar er einnig að finna svör við helstu spurningum um nýja kerfið.
Nú þegar flokka langflest heimili plast og pappír frá blönduðum heimilisúrgangi. Í nýju flokkunarkerfi er skylda að flokka matarleifar frá öðrum úrgangi. Til að auðvelda breytinguna fá öll heimili á höfuðborgarsvæðinu gefins sérstaka körfu undir matarleifarnar og pappírspoka sem fara í hana. Með því að flokka matarleifar frá blönduðum heimilisúrgangi er hægt að endurvinna þær í metangas og moltu. Hið samræmda flokkunarkerfi sveitarfélaganna mun því draga stórlega úr urðun og síðar brennslu á úrgangi og styðja við innleiðingu hringrásarhagkerfisins.
Samhliða þessum breytingum verður grenndargámum gefið nýtt hlutverk við að taka á móti málmi, gleri, textíl og skilagjaldsskyldum umbúðum, sem samkvæmt lögum ber að flokka sérstaklega og safna í nágrenni við íbúa.
Allar nánari upplýsingar um nýja flokkunarkerfið er að finna á www.flokkum.is
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…