Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Hafnarfjarðarbær og Terra ehf hafa gert með sér samkomulag um sorphirðu frá heimilum í Hafnarfirði frá vori 2023 til ársins 2031 og frá stofnunum sveitarfélagsins til 2026. Sorphirða sveitarfélagsins var boðin út nýlega og reyndist Terra ehf hlutskarpast.
Hafnarfjarðarbær og Terra ehf hafa gert með sér samkomulag um sorphirðu frá heimilum í Hafnarfirði frá vori 2023 til ársins 2031 og frá stofnunum sveitarfélagsins til 2026. Sorphirða sveitarfélagsins var boðin út nýlega og reyndist Terra ehf hlutskarpast. Skilmálar útboðs á sorphirðu hafa tekið umtalsverðum breytingum og tala nú í takti við sameiginlega yfirlýsingu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um innleiðingu á einu og samræmdu sorphirðukerfi og sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Valgeir M. Baldursson forstjóri Terra handsöluðu samkomulag um sorphirðu sveitarfélagsins á dögunum.
Terra mun taka við sorphirðu Hafnarfjarðarbæjar vorið 2023 þegar samningur við núverandi þjónustuaðila rennur út. Samhliða hefst losun á fjórum flokkum af sorpi við heimili og stofnanir í Hafnarfirði. Úrgangsflokkarnir eru:
Bílar Terra munu alfarið keyra á metanorku. Þjónusta Terra í Hafnarfirði mun hefjast á vormánuðum 2023.
Almennt viðmið fyrir hvert heimili verða tvær tvískiptar tunnur. Ein með sitthvoru hólfinu fyrir lífrænan eldhúsúrgang og blandaðan úrgang og önnur með hólfum fyrir plastumbúðir annars vegar og pappír og pappa hins vegar. Annað fyrirkomulag verður á tunnum í fjölbýli og við stofnanir. Ítarlegri upplýsingar um framkvæmd og fyrirkomulag verða kynntar þegar nær dregur innleiðingu á breyttu fyrirkomulagi.
Á vormánuðum 2022 undirrituðu fulltrúar sveitafélaganna á höfuðborgarsvæðinu sameiginlega yfirlýsingu um samstarf vegna sorphirðu. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi kallað eftir samræmdu sorphirðukerfi og flokkun við heimili og sérsöfnun á lífrænum eldhúsúrgangi. Kerfið er í samræmi við þær breytingar sem taka gildi á lögum um söfnun á úrgangi við heimili áramótin 2022-2023 og er að Norrænni fyrirmynd.
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…