Nýtt skólaár hefst eftir helgi

Fréttir

Nýtt skólaár innan grunnskóla Hafnarfjarðar hefst eftir helgi og munu rétt rúmlega 4.000 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið. Þar af eru tæplega 400 börn að hefja sína grunnskólagöngu. Skólaárið hefst með skólasetningu miðvikudaginn 23. ágúst.

Skólasetning í grunnskólum Hafnarfjarðar verður miðvikudaginn 23. ágúst og hefst formlegt skólastarf nemenda samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 23. ágúst. Rúmlega 4.000 börn og ungmenni setjast á skólabekk þetta haustið í grunnskólum Hafnarfjarðar og þar af eru tæplega 400 börn að hefja sína grunnskólagöngu. Nánari upplýsingar um stundaskrá og tímasetningar skólasetninga í hverjum skóla má finna á vef viðkomandi skóla. Í Hafnarfirði eru 11 grunnskólar, 9 reknir af bænum en Barnaskóli Hjallastefnunnar og NÚ eru sjálfstætt starfandi.

Hafragrautur, ávextir og ókeypis námsgögn

Að byrja í grunnskóla er stórt skref í lífi hvers barns og við slík tímamót er samstarf heimilis og skóla afar mikilvægt. Hagstæð uppeldisskilyrði og gott samstarf er forsenda þess að börn og ungmenni dafni vel í skólanum og þekki styrkleika sína. Frá haustinu 2019 hafa allir nemendur getað fengið hafragraut að morgni í skólanum sér að kostnaðarlausu. Auk þess er boðið upp á ávexti í áskrift í morgunhressingu, hádegisverði og síðdegishressingu, hvort heldur sem barn er í frístundaheimili (síðdegishressing er innifalin í gjaldi frístundaheimilis) eða ekki (og er þá greitt sérstaklega). Skólamatur ehf annast matarþjónustu í öllum grunnskólum bæjarins nema Áslandsskóla og skal snúa sér til þeirra varðandi mataráskriftir (skolamatur.is). Hafnarfjarðarbær útvegar grunnskólanemendum jafnframt námsgögn þeim að kostnaðarlausu. Skólar sjá um kaup á ritföngum sem nemendur þurfa að nota í skólastarfinu. Þannig fá nemendur stílabækur, skriffæri, möppur og annað slíkt sem þeir þurfa á að halda í daglegu skólastarfi til viðbótar við námsbækur.

Skólasetning að hausti – uppskeruhátíð að vori

Nú þegar haustið nálgast er skemmtilegt að rifja upp í máli og myndum eina af þeim fjölmörgu hátíðum sem haldnar voru í einstaka bæjarhlutum og skólahverfum síðastliðið vor. Skólasamfélagið við Skarðshlíðarskóla stóð til að mynda fyrir fjölmennri og glæsilegri vorhátíð við skólann í byrjun júní og var það í annað sinn í sögu skólans sem er nýjasti grunnskólinn í Hafnarfirði. Skipuleggjendur hátíðar sáu til þess að fjölbreytt afþreying var í boði og þótti ungum sem öldnum t.d. áhugavert að kynna sér þau tæki og tól sem finna má í slökkviliðsbílum og sjúkrabílum. Hoppukastalar, matarvagnar, klifurveggur, veltibíll og sirkuslistakonan Húlladúlla. Veðrið lék við mannskapinn og hátíðin afar vel sótt og vel heppnuð.  Tilkynning um hátíðina á vef skólans

Ábendingagátt