Öflug og skemmtileg dagskrá framundan hjá MsH
Markaðsstofa Hafnarfjarðar fer full tilhlökkunar inn í nýtt ár og ætlar að halda áfram að efla og styrkja samstöðu meðal hafnfirskra fyrirtækja. Það er gert með því að hittast, fræðast, eiga samtöl og efla tengsl. Markaðstofan hefur því sett saman öfluga og skemmtilega dagskrá fram á vor. Þau ríða á vaðið með fyrirtækjakaffi fimmtudaginn 18. janúar og námskeið um gervigreind þann 24. janúar.
Tengsl og tækifæri með Markaðsstofu Hafnarfjarðar
Markaðsstofa Hafnarfjarðar fer full tilhlökkunar inn í nýtt ár og ætlar að halda áfram að efla og styrkja samstöðu meðal hafnfirskra fyrirtækja. Það er gert með því að hittast, fræðast, eiga samtöl og efla tengsl. Markaðstofan hefur því sett saman öfluga og skemmtilega dagskrá fram á vor. Þau ríða á vaðið með fyrirtækjakaffi fimmtudaginn 18. janúar og námskeið um gervigreind þann 24. janúar. Í febrúar verður Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði heiðrað og þá kynna þau sér starfssemi flugherma hjá Icelandair á Flugvöllum 1.
Skráning
Mikilvægt er að skrá sig á námskeið og í fyrirtækjaheimsóknirnar. Aðgangur að þessum viðburðum er innifalinn í árgjaldi. Fyrirtækjakaffið er hins vegar öllum opið og óþarfi að skrá sig í það.
JANÚAR 2024
18. janúar Fyrirtækjakaffi
24. janúar Námskeið – Gervigreind á hraðferð
FEBRÚAR 2024
6. febrúar Fyrirtækjakaffi með kaffigesti – Guðbjörg Oddný og Sunna
15. febrúar Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði – Hvatningarverðlaunahátíð
23. febrúar Fyrirtækjaheimsókn – ICELANDAIR flight training
MARS 2024
6. mars Fyrirtækjakaffi
12. mars Námskeið – LinkedIN: styrktu tengslanetið og gríptu tækifærin
20. mars Síðdegis fyrirtækjakaffi – fyrirtækjakokteill
APRÍL 2024
11. apríl Fyrirtækjakaffi með kaffigesti
17. apríl Fyrirtækjaheimsókn – 64° distellery
23. apríl Aðalfundur Markaðstofu Hafnarfjarðar
30. apríl Námskeið – nánar auglýst síðar
MAÍ 2024
8. maí Fyrirtækjakaffi
23. maí Partýbingó með Gunnellu í Ægir 220
Dagatal á vef MsH
Markaðsstofan hefur sett upp dagatal með öllum viðburðunum – öll áhugasöm eru hvött til að kynna sér dagatalið. setjaviðburði í sitt dagatal og nýta sér tækifæri til fræðslu, fróðleik og tengsla.
Skráning í MsH
Ef þitt fyrirtæki er ekki skráð í markaðstofuna er hægt að ganga frá skráningunni hér