Opið fyrir skráningu á frístundaheimili 2023-2024

Fréttir

Frístundaheimilin í Hafnarfirði eru í boði fyrir börn í 1.-4. bekk og starfa við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní) og þær umsóknir sem berast fyrir 15. júní eru í forgangi.

Frístundaheimilin í Hafnarfirði eru í boði fyrir börn í 1.-4. bekk og starfa við alla grunnskóla sveitarfélagsins

Hlutverk þeirra er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur með m.a. hópastarfi, smiðjum, útiveru og vali auk þess að bjóða upp á frístundaakstur á íþróttaæfingar. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní) og þær umsóknir sem berast fyrir 15. júní eru í forgangi

Umsóknir sem berast eftir þann tíma geta farið á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Við skráningu er mikilvægt að tryggja að allar upplýsingar séu réttar og sérþarfir skráðar. Þegar barn fær vistun á frístundaheimili þá berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns. Boð þarf að staðfesta með svari innan þriggja daga.

Skráning fyrir 6 ára á sumarnámskeið í frístund verður auglýst síðar í apríl.

Nánari upplýsingar um frístundaheimilin í Hafnarfirði 

Skráningarform

Ábendingagátt