Opið fyrir skráningu á frístundaheimili 2025-2026 

Fréttir

Opið er fyrir skráningu á frístundaheimili Hafnarfjarðarbæjar fyrir skólaárið 2025-2026. Frístundaheimilin eru í boði fyrir börn í 1. – 4. bekkjum grunnskólanna og starfa við alla grunnskóla bæjarins. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. Umsóknir sem berast fyrir 15. júní eru í forgangi.

Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní) 

Opið er fyrir skráningu á frístundaheimili Hafnarfjarðarbæjar fyrir skólaárið 2025-2026. Frístundaheimilin eru í boði fyrir börn í 1. – 4. bekkjum grunnskólanna og starfa við alla grunnskóla bæjarins. Hlutverk frístundaheimilanna er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur með m.a. hópastarfi, smiðjum, útiveru og vali auk þess að bjóða upp á frístundaakstur á íþróttaæfingar. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu. 

Umsóknir sem berast fyrir 15. júní í forgangi

Umsóknir sem berast fyrir 15. júní eru í forgangi. Umsóknir sem berast eftir þann tíma geta farið á biðlista og eru ekki afgreiddar fyrr en í ágúst. Við skráningu er mikilvægt að tryggja að allar upplýsingar séu réttar og sérþarfir skráðar. Þegar barn fær vistun á frístundaheimili þá berst boð um vistun á það netfang sem fylgdi skráningu barns. Boð þarf að staðfesta með svari innan þriggja daga.  

Nánari upplýsingar um frístundaheimilin í Hafnarfirði  

Umsókn um frístundaheimili í Völu 

 

Ábendingagátt