Opið fyrir skráningu á sumarnámskeið
Fjölbreytt námskeið og sumartómstund standa börnum og ungmennum á aldrinum 6-13 ára til boða á vegum Hafnarfjarðarbæjar sumarið 2024 þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu með uppeldisgildi frítímastarfs að leiðarljósi. Mikil áhersla er lögð á sköpun, samveru, útiveru, hreyfingu og leiki í öllu skipulögðu starfi sveitarfélagsins og þátttökugjaldi stillt í hóf.
Fjölbreytt námskeið fyrir 6-13 ára
Fjölbreytt námskeið og sumartómstund standa börnum og ungmennum á aldrinum 6-13 ára til boða á vegum Hafnarfjarðarbæjar sumarið 2024 þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu með uppeldisgildi frítímastarfs að leiðarljósi. Mikil áhersla er lögð á sköpun, samveru, útiveru, hreyfingu og leiki í öllu skipulögðu starfi sveitarfélagsins og þátttökugjaldi stillt í hóf. Á sérstakri upplýsingasíðu á vef Hafnarfjarðarbæjar er hægt að skoða ítarlegar upplýsingar um þau námskeið og sumartómstund sem í boði eru í sumar auk upplýsinga um Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Ítarlegar upplýsingar um sumarnámskeið og sumartómstund Hafnarfjarðarbæjar
Eftirfarandi er í boði
- Sumarfrístund fyrir útskriftarhópa leikskólanna (6 ára á árinu)
- Sumarfrístund fyrir 7-9 ára við alla grunnskóla
- SumarKletturinn fyrir börn í 9–13 ára með sértæka stuðningsþörf
- Tómstund fyrir 10-13 ára
- Skemmtileg og skapandi sumarnámskeið í Hafnarborg fyrir 6-12 ára
- Sumarlestur frá 1. júní – 31. ágúst á Bókasafni Hafnarfjarðar
- Vinnuskóli fyrir 14-17 ára ungmenni Hafnarfjarðar
- Annað íþrótta- og tómstundastarf í Hafnarfirði
Skráning á námskeið og í sumarfrístund á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Tómstund.is
Í Hafnarfirði er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og ungmenni yfir sumartímann. Á vefnum tomstund.is er hægt að skoða fjölbreytt námskeið og sumarfrístund sem eru í boði á vegum Hafnarfjarðarbæjar og annarra félaga og samtaka í Hafnarfirði.