Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Hafnarfjarðar fyrir ungmenni fædd 2000 – 2002. Vinna í vinnuskóla hefst 13. júní og stendur yfir til 21. júlí. Vinnustundir á viku eru tólf.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Hafnarfjarðar fyrir ungmenni fædd 2000 – 2002. Vinna í vinnuskóla hefst 13. júní og stendur yfir til 21. júlí þar sem unnið er til skiptist fyrir og eftir hádegi alla daga vikunnar nema föstudaga en þá er frí. Vinnustundir á viku eru tólf.
Í sumar býðst ungmennum á aldrinum 14-16 ára vinna í Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Störfin eru fjölbreytt og eiga þau öll það sammerkt að snúa að umhverfismálum og þar með hreinsun og fegrun á bænum okkar þegar hann er í hvað mestum blóma. Vinnustundir á viku eru tólf og er unnið til skiptist fyrir og eftir hádegi viku í senn, annars vegar frá kl. 9-12 og hins vegar 13-16.
Laun og umsóknarferli
Laun 14-16 ára ungmenna í Vinnuskóla Hafnarfjarðar voru hækkuð nýverið um sem nemur 15%. Sextán ára ungmenni eru með 625,49 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Þegar allt er talið geta unglingar á þessum aldri unnið sér inn tæplega 50.000.- kr. yfir sumarið miðað við fulla mætingu. Mjög brýnt er að 16 ára ungmenni láti vita hvort þau ætli að nýta skattkortið sitt svo ekki verði tekinn af þeim skattur. Fimmtán ára ungmenni verða með 470,46.- kr. á tímann og orlof þar ofan á. Miðað við fulla mætingu geta þau unnið sér inn rúmlega 37.000.- kr. Fjórtán ára ungmenni verða með 416,38.- kr. á tímann og orlof þar ofan á. Miðað við fulla mætingu verða heildarlaun hjá þeim um 33.000.- kr. Orlof (10,17%) er borgað út hjá öllum aldurshópum. Laun verða greidd 6. júlí fyrir júní og 5. ágúst fyrir júlí. Boðað er til vinnu rétt fyrir eða helgina áður en vinna hefst.
Búið er að opna fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur til 13. maí.
Upplýsinga og aðstoð í síma: 565-1899 | netfang: vinnuskoli@hafnarfjordur.is.
Vinnuskóli Hafnarfjarðar sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn eftir snjóþungan vetur og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að hans sé þrifalegur og snyrtilegur á að líta, fyrir íbúa og ferðamenn sem sækja bæinn heim í auknum mæli. Rúmlega áttahundruð ungmenni störfuðu hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar sumarið 2015 eða um 70% hafnfirskra ungmenna á aldrinum 14-16 ára.
Nánari upplýsingar um Vinnuskóla Hafnarfjarðar er að finna hér
Síðasta Jólaþorps-helgin er nú hafin. Fjölmargt að sjá og gera. Yndislegt er að stækka enn upplifunina með því að kíkja…
Ný skammtímadvöl fyrir fötluð börn, sem tók til starfa í Hafnarfirði í haust, var formlega opnuð í vikunni þegar starfsfólk…
Rósa Guðbjartsdóttir sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund sem bæjarstjóri á miðvikudag. Ráðningasamningur við nýjan bæjarstjóra var undirritaður á fundinum. Rósu voru…
Hátt í sjötíu voru samankomin í undirgöngunum við Hörðuvelli á föstudagseftirmiðdag þegar Byggðasafn Hafnarfjarðar opnaði sýninguna sína Köldu ljósin. Sýningin…
Gleði, eftirvænting, friður, minningar og endurfundir eru hugtök sem eiga við dæmigerð íslensk jól, ritar Arnór Bjarki Blomsterberg, sóknarprestur í…
Söfn og stofnanir bæjarins verða opin á eftirfarandi dögum og tímum yfir hátíðarnar. Löng útlán á DVD myndum gilda á…
Bestu stundirnar um jólin leynast oft í stundlaugum bæjarins. Sundlaugar Hafnarfjarðar verða opnar um jól og áramót sem hér segir.
„Við systkinin erum öll orðin svo gott sem fullorðin og tvö komin á fertugsaldur, en öll viljum við hvergi annars…
Nýr sex deilda leikskóli verður tekinn í notkun í Hamranesi á árinu 2025 sem og nýtt knatthús að Ásvöllum og…
Hvað er betra en að kynnast sögunni á hlaupum? Nú eru aðeins tveir dagar í Kaldárhlaupið, 10 km hlaup í…