Opið fyrir umsóknir 14-16 ára

Fréttir

Sumarið 2019 fá 14 – 16 ára unglingar (fæddir árin 2003 – 2005) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn eftir snjóþungan vetur og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. 

Sumarið 2019 fá 14 – 16 ára unglingar (fæddir árin 2003 – 2005) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn eftir snjóþungan vetur og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að hann sé þrifalegur og snyrtilegur á að líta og ekki síst skemmtilegur fyrir íbúa og ferðamenn sem sækja bæinn heim í auknum mæli.

Daglegur vinnutími og vinnutímabil

Allir aldurshópar hefja vinnu 11. júní. 14 ára unglingar vinna aðra hverja viku fyrir hádegi og eftir hádegi hina, mánudaga til fimmtudaga. Lokað er á föstudögum. Fyrir hádegi er unnið frá 9– 12 og eftir hádegi frá 13 – 16. 15 og 16 ára unglingar hafa breytilegan vinnutíma. 14 ára unglingar vinna 79 tíma í sumar, 15 ára unglingar 101 tíma og 16 ára unglingar fá 123 tíma.  

Laun
16 ára unglingar eru með 835 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Mjög brýnt er að 16 ára unglingar láti vita hvort þau ætli að nýta skattkortið sitt svo ekki verði tekinn af þeim skattur. 15 ára unglingar verða með 627 kr. á tímann og orlof þar ofan á. 14 ára unglingar verða með 555 kr. á tímann og orlof þar ofan á. Orlof (10,17%) er borgað út hjá öllum aldurshópum.

Umsókn um starf hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Umsækjendur sækja um rafrænt á MÍNUM SÍÐUM. Umsækjendur og forráðamenn eru beðnir um að kynna sér m.a. fyrirkomulag og reglur Vinnuskólans áður en umsókn er fyllt út. Umsóknarfrestur er til og með 16. maí.

Umsækjendur sækja um rafrænt á MÍNUM SÍÐUM hjá Hafnarfjarðarbæ eða hér

  • Umsóknir fyrir ungmenni fædd 2003 – jafningjafræðsla, listahópur, almennir hópar, tómstund og skógrækt 
  • Umsóknir fyrir ungmenni fædd 2004 
  • Umsóknir fyrir ungmenni fædd 2005 

Reglur Vinnuskóla Hafnarfjarðar gilda jafnt á vinnutíma sem og við félagsstörf á vegum skólans:

  1. Flokksstjóri er verkstjóri á vinnustað. Næsti yfirmaður hans er yfirflokksstjóri
  2. Öllu starfsfólki ber að vera vinnusamt, stundvíst, heiðarlegt og kurteist
  3. Veikindi og önnur forföll ber að tilkynna hið fyrsta til skrifstofu Vinnuskólans af forráðamönnum
  4. Notkun tóbaks er bönnuð. Sama gildir um áfengi og önnur vímuefni
  5. Sjoppu- og búðarferðir eru ekki leyfðar á vinnutíma, þ.m.t. kaffitíma
  6. Starfsmönnum ber að ganga vel og þrifalega um á vinnustað og fara vel með þau áhöld sem notuð eru
  7. Starfsmenn bera viðeigandi kostnað ef þeir fremja skemmdarverk á eigum Vinnuskólans og annarra
  8. Í kaffitímum er ætlast til að starfsfólk hafi hollt og gott nesti. Ekki er leyfilegt að vera með orku- og gosdrykki
  9. Notkun farsíma er ekki leyfileg á vinnutíma. Sama gildir um Ipod/Mp3 nema flokkstjóri gefi leyfi um annað
  10. Allir starfsmenn útvega sjálfir hlífðarfatnað og bera starfsmenn ábyrgð á eigin fötum og eigum

Skrifstofa Vinnuskólans er í gamla hjálparsveitahúsinu að Hrauntungu 5. Skrifstofan er opin frá kl. 8 – 16. Sími Vinnuskólans er 565-1899 og netfangið vinnuskoli@hafnarfjordur.is

Nánari upplýsingar um Vinnuskóla Hafnarfjarðar er að finna hér

Ábendingagátt