Opið fyrir umsóknir 14 – 17 ára í Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Fréttir

Sumarið 2023 fá öll ungmenni 14 – 17 ára (fædd árin 2006 – 2009) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann.

Sumarið 2023 fá öll ungmenni 14 – 17 ára (fædd árin 2006 – 2009) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að hann sé þrifalegur og snyrtilegur á að líta og ekki síst skemmtilegur fyrir íbúa og ferðamenn sem sækja bæinn heim í auknum mæli. Ungmennin hefja störf mánudaginn 12. júní.

Opið er fyrir umsóknir

Umsókn um starf hjá Vinnuskóla Hafnarfjarðar

Umsækjendur og forsjáraðilar eru beðnir um að kynna sér m.a. fyrirkomulag og reglur Vinnuskólans áður en umsókn er fyllt út. Opið verður áfram fyrir umsóknir í maí og júní og möguleiki að fá starf í almennum hópum. Skrifstofa vinnuskólans er staðsett í Menntasetrinu við Lækinn við Skólabraut 3. Skrifstofan er opin frá kl. 8 – 16 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 8-14 á föstudögum. Sími Vinnuskólans er 565-1899 og netfangið: vinnuskoli@hafnarfjordur.is

Nánari upplýsingar um vinnutíma, laun og reglur Vinnuskóla Hafnarfjarðar 

Ábendingagátt