Opið fyrir umsóknir í Jólaþorpið

Fréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2021. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með loforði um líf og jólafjör í sölubásnum.

Undirbúningur jólanna í Hafnarfirði hefst með opnun umsókna í Jólaþorpið  

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2021. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með loforði um líf og jólafjör í sölubásnum.

Vilt þú vera með í Jólaþorpinu í ár? Valið eru úr innsendum umsóknum 

Í Jólaþorpinu verða um tuttugu skreytt einingahús sem eru 5,8 m2 að stærð. Góð aðsókn hefur verið í söluhús Jólaþorps Hafnarfjarðar síðustu árin og því er valið úr innsendum umsóknum þar sem horft er sérstaklega til nokkurra þátta. Stefnt er að opnun Jólaþorpsins í lok nóvember og að opið verði alla aðventuna á laugardögum og sunnudögum frá kl. 13-18 og til kl. 22 á Þorláksmessu. Leigugjald á söluhúsi er kr. 16.000.- fyrir helgina. Innifalið í leigugjaldi er allur kostnaður við uppsetningu, rekstur húss og þrif á svæðinu. Að auki mun Hafnarfjarðarbær sjá um að kynna Jólaþorpið í Hafnarfirði með ýmsum hætti í samfélags- og fjölmiðlum og laða gesti að með skemmtidagskrá.

061220_JolathorpidDagur-25-of-25-

Söluaðilar þurfa að uppfylla lög og reglur sem um það kunna að gilda hvað sölumuni varðar. Sé vara eða vöruflokkur skilyrtur á einhvern hátt eða háður veitingu leyfa ber söluaðila að kynna sér það og afla viðkomandi leyfa. Á þetta við t.d. sölu matvæla, drykkjar, áfengra drykkja og annarar vöru sem er mögulega eftirlitsskyld. Söluaðilar eru hvattir til að kynna sér einnig hvort og hvaða tryggingar kunni að vera hentugar eigi það við. Staðsetning jólahúsa fer eftir heildarásýnd þorpsins og hvað hentar helst í því skyni.

Umsóknarfrestur fyrir 20. október 2021

Umsækjendur þurfa að skila inn umsókn um hús í Jólaþorpinu fyrir 20. október 2021 en eftir það fara umsóknir á biðlista. Hægt er að senda fyrirspurnir á jolathorp@hafnarfjordur.is

Ábendingagátt