Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2023. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með skýra tengingu við jólahefðir landsmanna.
Í Jólaþorpinu verða um tuttugu skreytt einingahús sem eru 5,8 m2 að stærð. Góð aðsókn hefur verið í söluhús Jólaþorps Hafnarfjarðar síðustu árin og því er valið úr innsendum umsóknum þar sem horft er sérstaklega til nokkurra þátta. Jólaþorpið opnar föstudaginn 17.nóvember og verður opið alla aðventuna á föstudögum frá kl. 17-20, laugardögum og sunnudögum frá kl. 13-18 og til kl. 21 á Þorláksmessu. Leigugjald á söluhúsi er 19.000 kr. fyrir helgina. Innifalið í leigugjaldi er allur kostnaður við uppsetningu, rekstur húss og þrif á svæðinu. Að auki mun Hafnarfjarðarbær sjá um að laða að gesti og kynna Jólaþorpið í Hafnarfirði með ýmsum hætti.
Hvað sölumuni varðar þurfa söluaðilar að uppfylla lög og reglur sem um þá kunna að gilda. Sé vara eða vöruflokkur skilyrtur á einhvern hátt eða háður veitingu leyfa ber söluaðila að kynna sér það og afla viðkomandi leyfa. Á þetta við t.d. sölu matvæla, drykkja, áfengra drykkja og annarar vöru sem er mögulega eftirlitsskyld. Söluaðilar eru hvattir til að kynna sér einnig hvort og hvaða tryggingar kunni að vera hentugar eigi það við. Staðsetning jólahúsa fer reglulega í endurskoðun og staðsetning einstakra söluaðila eftir því hvað hentar helst í því skyni.
Umsækjendur þurfa að skila inn umsókn um hús í Jólaþorpinu og opið er fyrir umsóknir til og með 17. október 2023 en eftir það fara nýjar umsóknir á biðlista. Hægt er að senda fyrirspurnir á jolathorp@hafnarfjordur.is
Sækja um hér
Nánari upplýsingar um Jólabæinn Hafnarfjörð
Jólaþorpið í Hafnarfirði er á Facebook
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…