Opið hús: 2. september vegna Hrauns vestur
Opið hús verður þriðjudaginn 2. september nk. frá kl. 9 til 16 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði. Þar verður hægt að kynna sér tillögu að breyttu aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vesturs ásamt umhverfisskýrslu.
Við minnum á opið hús þriðjudaginn 2. september nk. frá kl. 9 til 16 að Norðurhellu 2, 221 Hafnarfirði. Þar verður hægt að kynna sér tillögu að breyttu aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vesturs ásamt umhverfisskýrslu.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 12. júlí 2025 að auglýsa tillögu og umhverfismatsskýrslu vegna breytinga á aðalskipulagi Hrauns vesturs í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að breyta landnotkun í aðalskipulagi á skipulagssvæðinu Hraun Vestur úr athafnasvæði, verslun- og þjónusta, samfélagsþjónustu og íbúðabyggð í miðsvæði. Með þessu er ætlunin að breyta nýtingu á öllu svæðinu úr atvinnusvæði í blandaða byggð s.s. byggð sem býður upp á búsetu, atvinnustarfsemi og þjónustu, þ.e.a.s. að opna á möguleika á meiri fjölbreytileika á svæðinu.
- Kynningartíminn er til 19. september 2025 og má nálgast gögn á vef skipulagsgáttar hér.
Athugasemdir eða ábendingar skulu berast með rafrænum hætti í gegnum skipulagsgátt.
Velkomin öll.