Opnunarhátíð Hjartasvellsins
Fimmtudaginn 17. nóvember 2022 verður opnunarhátíð Hjartasvellsins í hjarta Hafnarfjarðar. Svellið opnar kl. 15 og verður opið til kl. 21. Frítt verður á svellið allan opnunardaginn og skemmtileg dagskrá fyrir ungt fólk á öllum aldri enda frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna að hittast í hjarta Hafnarfjarðar og eiga gæðastund á skautum.
Skemmtun fyrir ungt fólk á öllum aldri
Fimmtudaginn 17. nóvember 2022 verður opnunarhátíð Hjartasvellsins í hjarta Hafnarfjarðar. Svellið opnar kl. 15 og verður opið til kl. 21. Frítt verður á svellið allan opnunardaginn og skemmtileg dagskrá fyrir ungt fólk á öllum aldri enda frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna að hittast í hjarta Hafnarfjarðar og eiga gæðastund á skautum. Svellið er staðsett beint fyrir framan Bæjarbíó og Bókasafn Hafnarfjarðar. Heitt kakó og möffins verða á sérstöku opnunarhátíðarverði!
Dagskrá á formlegum opnunardegi Hjartasvellsins
- Kl. 15-16. Frítt á svellið fyrir alla. Takmarkaður fjöldi – fyrstir koma fyrstir fá
- Kl 16:30-18. Skautafélag Reykjavíkur kemur í heimsókn og kennir undirstöðuatriðin í hokkí. Þau koma með kylfur, mörk og net auk þess sem þjálfarar verða með í för
- Kl 17:30. Krakkar úr U14 liðum SR og spila stuttan og hraðan sýningarleik.
- Kl 18 -21. Aldrei að vita nema boðið verði upp á eitthvað óvænt atriði
Allar nánari upplýsingar á vef Bæjarbíó og Facebooksíðu