Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Þjónusta við eldri borgara í Hafnarfirði er allajafna fjölbreytt, bæði inn á heimilum og utan þeirra. Eftir að samkomubann var fyrst sett á í byrjun mars var ákvörðun tekin um að fella tímabundið niður félagsstarf eldri borgara og loka sameiginlegum mötuneytum til að gæta fyllstu varúðar og öryggis. Heimaþjónusta; heimilisþrif, félagslegur stuðningur og aðstoð við innkaup, hefur að mestu haldist óskert en heldur hefur dregið úr eftirspurn.
Þjónusta við eldri borgara í Hafnarfirði er allajafna fjölbreytt, bæði inn á heimilum og utan þeirra. Eftir að samkomubann var fyrst sett á í byrjun mars var ákvörðun tekin um að fella tímabundið niður félagsstarf eldri borgara og loka sameiginlegum mötuneytum til að gæta fyllstu varúðar og öryggis. Heimaþjónusta; heimilisþrif, félagslegur stuðningur og aðstoð við innkaup, hefur að mestu haldist óskert en heldur hefur dregið úr eftirspurn. Matarþjónusta er í boði fyrir alla þá eldri borgara sem vilja.
„Eldri íbúar í Hafnarfirði eru greinilega mjög meðvitaðir um það að gæta fyllsta öryggis og varúðar og einhverjir sem hafa afþakkað þjónustu sem þeir hafa haft til að verja sig og heimili sitt. Við brugðum því á það ráð að hafa samband við okkar fólk símleiðis og erum þessa dagana að hafa samband við þá sem eru 85 ára og eldri og búa enn heima. Við viljum halda vel utan um eldra fólkið okkar og tryggja að þeir sem hafa fáa í kringum sig og vantar félagsskap á þessum ótrúlegu tímum fái hann. Við viljum að fólkinu okkar líði vel og að það hafi allt til alls“ segir Sjöfn Guðmundsdóttir deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustu á fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðarbæjar. Örspjall við eldri borgara er unnið í samstarfi við starfsfólk hjá Félagi eldri borgara í Hafnarfirði sem sjá um að hafa samband við sitt fólk. Starfsfólk matarþjónustu og heimaþjónustu eru þessa dagana að hafa samband við þá sem eru ekki í Félagi eldri borgara en í heild snertir verkefnið rúmlega 350 manns. Eldri borgarar sem mættu reglubundið í mötuneyti sveitarfélagsins var strax við lokun boðið upp á heimsendingu matar og þjónustan þannig víkkuð út til að mæta breyttum aðstæðum.
Starfsfólk Sjafnar í heimaþjónustu hefur staðið vaktina frá upphafi Covid19 og lagt áherslu á uppstokkun og endurskipulagningu sinnar þjónustu í samstarfi við þjónustuþega. „Þrátt fyrir allt þá hefur starfið gengið ótrúlega vel og því bera að þakka frábæru starfsfólki sem hefur lagt sig fram við að finna leiðir sem henta hverjum og einum þannig að tryggja megi þjónustuna“ segir Sjöfn og vísar þeirra aðgerða sem átt hafa sér stað síðustu daga og vikur á tímum Covid19. „Hér er um að ræða dæmi um þjónustu við viðkvæman hóp sem þarf að haldast órofin á öllum viðbúnaðarstigum og við tökum hlutverk okkar alvarlega“ segir Sjöfn að lokum.
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…