Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Í október sl. var samstarfsverkefni Húsnæðis og Mannvirkjastofnunar (HMS), ASÍ og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) ”Örugg búseta fyrir alla” ýtt úr vör, en markmiðið var að kortleggja búsetu í atvinnuhúsnæði. Verkefnið hófst með kortlagningu á höfuðborgarsvæðinu sem nú er lokið og er ítarlegar niðurstöður að finna í skýrslu sem unnin var í kjölfarið.
Á blaðamannafundi sem haldinn var í Skógarhlíðinni í dag fóru Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri SHS, Regína Valdimarsdóttir, teymisstjóri hjá HMS, Drífa Snædal, forseti ASÍ og Dagur B. Eggertsson, formaður stjórnar SHS yfir helstu niðurstöður.
Auk þess að kortleggja fjölda íbúa í atvinnuhúsnæði og ástand brunavarna var samsetning íbúanna einnig skoðuð m.t.t. móðurmáls, stöðu á vinnumarkaði og annarra þátta. Niðurstöður sýna að búseta í atvinnuhúsnæði hefur dregist saman frá því að könnun SHS var gerð árið 2017. Þá var talið að á bilinu 3.500 og 4.000 einstaklingar byggju í atvinnuhúsnæði en í dag er áætlað að íbúarnir séu 1.868 talsins þar af 19 börn. Flestar þessara íbúða eru á svæðum sem eru í umbreytingarferli. Hafa ber í huga að áhrifaþættir í samfélaginu geta haft áhrif á fjölda þeirra sem búa í atvinnuhúsnæði.
Brunavarnir eru á heildina litið betri en gert var ráð fyrir en áætlað er að um helmingur íbúa búi við ásættanlegar brunavarnir. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins telur þó þörf á að skoða fjórðung húsnæðisins aftur á næstunni til að yfirfara brunavarnir betur. Tæplega 33% íbúa eru pólskumælandi þar næst koma Íslendingar, tæp 24%. Stór meirihluti, eða næstum 85% íbúa, er á vinnumarkaði. Vísbendingar eru um að Íslendingar eigi oftar atvinnuhúsnæðið sem þeir búa í en fólk af erlendum uppruna sé líklegra til að leigja.
Búseta í atvinnuhúsnæði 2021-2022. Home safety
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…