Öskudagurinn á miðvikudag – Nú verður gaman!
Það styttist í einn skemmtilegasta dag ársins. Öskudaginn. Hann verður enn betri með heimsókn á bókasafnið, í Hafnarborg og þjónustuverið hér í Ráðhúsinu.
Öskudagurinn í Hafnarfirði
Já, það er hressilegur siður að halda öskudaginn hátíðlegan í Hafnarfirði, enda fátt skemmtilegra en að klæða sig upp í búninga og skemmta sér. Hafnfirskir skólar útfæra dagskrá sína. Frístundaheimilin eru opin og verða að vanda litrík.
Skertur skóladagur og öskudagsuppbrot
Öskudagurinn í Hafnarfirði fer fram með hefðbundnum hætti. Skóladagur grunnskólanemenda er skertur og lýkur skólastarfi upp úr 11 í öllum grunnskólunum Hafnarfjarðarbæjar, þó misjafnt eftir skólum og stigum.
Öskudagsuppbrot verður á starfi leikskóla Hafnarfjarðar með búningum og gleði en að öðru leyti helst leikskólastarfið óbreytt.
Söfn og þjónustuver taka vel á móti syngjandi glöðum börnum
Hafnarfjarðarbær stendur ekki fyrir sérstökum hátíðarhöldum í miðbæ Hafnarfjarðar á öskudaginn frekar er fyrri ár. Hins vegar mun starfsfólk okkar í Ráðhúsi Hafnarfjarðar að Strandgötu 6, Bókasafni Hafnarfjarðar og Hafnarborg taka vel á móti þeim syngjandi glöðum börnum.
- Bókasafnið tekur á móti Öskudagsgestum milli klukkan 11 og 17 og eru allar heimsins furðuverur velkomnar.
- Hafnarborg er opið frá klukkan 12 og er nammi í boði á meðan birgðir hendast.
- Þjónustuverið býst við börnunum frá klukkan 11
Þetta verður skemmtilegt. Njótum þess að sjá börnin í öllum regnbogans litum.